covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég hefði talið miklu betra að við héldum okkur bara við að tala um seinni sprautuna. Það að vera að tala um fyrri sprautuna stundum og seinni sprautuna svo er pínu eins og í umræðum um efnahagsmál þegar verið er að blanda saman brúttó og nettó þar sem menn geta gefið sér einhverjar forsendur. En ég býst við að hæstv. ráðherra sé mér nokkuð sammála um að þessi yfirlýsing á blaðamannafundinum var býsna afdráttarlaus. Þarna var bara sagt: Svona verður þetta 1. júlí. Þórólfur talaði um að þegar búið væri að bólusetja 60% væri hægt að byrja á því að aflétta. Það er alveg í samræmi við þá umræðu sem nú á sér stað í norskum fjölmiðlum þar sem menn búast við því að jafnvel þó að búið verði að bólusetja alla yfir 16 ára aldri þar í landi þurfi menn áfram að vera með sóttvarnaaðgerðir og ráðstafanir, býsna íþyngjandi, kannski allan næsta vetur. Síðan vitum við að eftir því sem tímar líða geta komið fram ný afbrigði, sérstaklega þar sem okkur á Vesturlöndum hefur ekki auðnast að aðstoða betur fátækari löndin og þau kunna að smita og þau kunna að hafa áhrif og við getum kannski þurft að bólusetja í þriðja skiptið. Þetta þekkjum við öll.
Nú vil ég gjarnan deila bjartsýni hæstv. ráðherra og ég styð hana fyllilega í þeim aðgerðum sem við stöndum frammi fyrir. En ég spyr aftur hvort það hafi ekki verið dálítið glannalegt að fullyrða svona ofboðslega afgerandi á blaðamannafundinum í Hörpu um 1. júlí. Ég veit að það að vera í svona fallegu húsi getur blásið manni kjark í brjóst og maður getur látið ýmislegt út úr sér sem maður gerði ekki annars. En er þetta ekki varhugavert?