covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Við vitum að það er verulega mikil vörn af fyrri sprautu. Það væri ekki í samræmi við meðalhóf að líta fram hjá þeirri vörn, þó svo að sannarlega sé það þannig að full bólusetning gefi meiri vörn. Það er til að mynda forsenda þess að fólk geti fengið bólusetningarskírteini að full bólusetning hafi farið fram. Mjög mörg samfélög í kringum okkur, ég nefni til að mynda Bretland og ég nefni líka ýmis Norðurlandanna, hafa verið að birta afléttingaráætlanir sem byggja á fyrri sprautu. Það er auðvitað bara með öllum þeim fyrirvörum sem ég nefndi áðan.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vilja vera bjartsýnn með mér. Ég held að það sé mikilvægt að vera það þó að við byggjum það auðvitað fyrst og fremst á raunsæi. Það hefur ekki staðið á mér að tala um það hér á Alþingi og víðar að upp kunni að koma tilvik sem ekki eru sýnileg á radar núna, til að mynda stökkbreytt afbrigði og flóknar aðstæður af ýmsu tagi. Til að mynda bjó hv. velferðarnefnd þannig um málið frá þinginu í síðustu viku að sóttvarnalæknir gæti horft sérstaklega til þess, sem ég held að sé mjög mikilvægt. En ég held, virðulegur forseti, að það sé raunsætt og ábyrgt að tala um að þegar ákveðnu hlutfalli er náð í fyrri sprautu í samfélaginu þá haldist það í hendur við afléttingar á aðgerðum hér innan lands, og við erum byrjuð að aflétta.