covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hér fyrir þingið eina ferðina enn og stunda litla líkamsrækt í leiðinni með því að standa tuttugu og eitthvað sinnum upp úr stól og setjast til að eiga orðastað við þingmenn. Þetta er mikilvægt fyrir þingið og skiptir, held ég, samfélagið allt verulegu máli. Nú þegar við sjáum fram á betri tíð, bæði til jarðar og lands og einnig til heilsufars og Covid-faraldursins, er mikilvægt að horfa til þess hvað gerist næst, hvernig uppbyggingaráform við höfum, hvernig við ætlum að koma samfélaginu aftur í gang og kannski sérstaklega hvernig við horfum til þess með tilliti til félagslegra þátta, með tilliti til heilbrigðiskerfisins o.fl. Það er mikilvægt að mínu viti að samfélagið sé með í þeirri áætlanagerð og þá sérstaklega aðilar eins og verkalýðshreyfingin, samtök vinnuveitenda, sveitarfélögin, aðilar í ferðaþjónustu að einhverju leyti og kannski ekki hvað síst sjúklingasamtök og þeir hópar einstaklinga sem hafa orðið veikir í Covid og glíma við langtímaafleiðingar.
Mig langar aðeins að heyra í hæstv. ráðherra um það með hvaða hætti hún sér fyrir sér að stjórnvöld muni stýra þeirri framtíðarsýn, svo langt sem það nær að stjórnvöld stýri framtíðarsýn, eða með hvaða hætti stjórnvöld sjá fyrir sér að leiða samfélagið á jákvæðan hátt, ekki bara í gegnum faraldurinn heldur líka áfram.