151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:17]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég held að þegar við munum líta til baka, þegar við verðum komin þangað eftir einhver ár og horfum til þess sem gerðist veturinn 2020–2021, og raunar alveg frá því í febrúar 2020, þá munum við kannski afgreiða það í fáum setningum; að okkur hafi gengið vel að glíma við faraldurinn. Það hafi gengið vel, við höfum snúið bökum saman og okkur hafi gengið vel í bólusetningum o.s.frv. Síðan er það langa sagan og stóra sagan sem verður mikil áskorun, bæði að segja og fara í gegnum, og það er hvernig við vinnum okkur í gegnum þær efnahagslegu og samfélagslegu afleiðingar sem faraldurinn hefur haft með beinum og óbeinum hætti. Auðvitað er fjöldinn allur af aðgerðum sem gripið hefur verið til á meðan á faraldrinum hefur staðið. Við þekkjum lokunarstyrki, viðspyrnustyrki og sértækar ráðstafanir í geðheilbrigðismálum o.s.frv. sem hv. þingmaður þekkir vel. Við erum að tala um afmörkuð verkefni sem lúta að því að fjölga störfum. Það hefur gengið vel. Við erum að tala um verulega innspýtingu í þróun, rannsóknir og nýsköpun. Allt eru það fræ sem koma til með að spíra og bera ávöxt í aðeins fjarlægari framtíð, a.m.k. sumt af þeim verkefnum. En ég held að öllu máli skipti að endurreisnin eftir þessa dýfu verði þannig að hún beri með sér lærdóma, að hún beri það með sér að við viljum sjá samfélagið komast aftur á kjöl í gegnum aðgerðir sem byggja á þeirri meginsýn að við þurfum að tryggja samfélagslegan jöfnuð og koma í veg fyrir að endurreisn samfélagsins verði þannig (Forseti hringir.) að fólk lendi í varanlegum vandræðum. Og þá vil ég fyrst og fremst nefna langtímaatvinnuleysi sem er eitthvað sem við þurfum að (Forseti hringir.) sporna gegn með öllum ráðum.