151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:19]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Það er mikilvægt að við vinnum saman að því að sýna á spilin, liggur mér við að segja, hvernig við sjáum fyrir okkur að samfélagið geti orðið eftir Covid.

Mig langar í seinni umferðinni að koma aðeins inn á bólusetningar og þann möguleika sem er nú æ meira í umræðu í löndunum í kringum okkur, þ.e. möguleikann á þriðju bólusetningu og jafnvel, eins og sums staðar er rætt, að við gætum horft fram á að þurfa að skoða ítrekaðar bólusetningar á næstu misserum og árum. Er ráðuneyti hæstv. ráðherra farið að skoða það eitthvað og þá jafnvel með tilliti til áhrifa á heilbrigðiskerfið og kostnaðar og þess háttar? Þetta skiptir svolitlu svolítið miklu máli. Í þessu samhengi er líka sú vangavelta sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir kom inn á hér áðan um bólusetningar einstaklinga yngri en 16 ára og á hvaða tímapunkti það kynni að verða.

Svo kannski að lokum að því sem ég hef nefnt ítrekað hér í ræðustól, þ.e. möguleikanum á því og hvenær ráðherra sér fyrir sér að fleiri efni komi sem við getum notað til bólusetninga og hvort það hangi enn þá algjörlega á Evrópsku lyfjastofnuninni hvort og hvenær við getum stigið ákveðin skref í áttina að því að útvega okkur slík efni.