151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:26]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Mér finnst leiðinlegt hvað hv. þingmaður er óhress með þetta allt saman vegna þess að ég held að við getum bara verið tiltölulega ánægð með árangurinn. Það er auðvitað það sem skiptir mestu máli þegar við skoðum stöðuna á hvaða punkti sem er, hvort sem það er núna eða á einhverjum öðrum punkti í faraldrinum, að okkur hefur gengið vel. Árangurinn er auðvitað það sem teiknar það fyrst og fremst hvernig til hefur tekist. Hv. þingmaður veit það alveg að við gátum ekki sagt til um afhendingu í janúar af því að við vorum ekki með þær upplýsingar í höndunum. Það var einfaldlega þannig. Hv. þingmaður var hér í þinginu og veit af þeirri umræðu. Það að fara að tala um það núna að það hefði átt að segja eitthvað í janúar um það sem við vitum í apríl er náttúrlega bara úr lausu lofti gripið. Það hjálpar ekkert umræðunni að þvæla með hana með þessum hætti. Og að halda því fram að það hafi þurft að toga allar upplýsingar út með töngum — ég vísa því á bug því að það er ekki rétt. Við höfum lagt okkur fram um það í þessum faraldri, og það er horft til þess hjá öðrum ríkjum og við erum spurð hvernig við höfum nálgast það, að gera okkar besta í því að halda upplýsingum eins miklum og opnum og nokkur kostur er í gegnum þennan faraldur með þéttum upplýsingafundum, með miklum upplýsingum varðandi bóluefnasamninga, framvindu þeirra, afhendingar. Þó að afhendingaráætlanir hafi stundum breyst þá höfum við samt látið sjá í þær um leið og við vitum hvernig þær líta út. Afstaða mín er algjörlega skýr: Ég tel mjög mikilvægt fyrir traustið í samfélaginu að upplýsingar liggi fyrir eins og nokkurs er kostur. Það gætu einhverjir gagnrýnt að það ylli því að einhver óvissa og óreiða skapaðist vegna þess að (Forseti hringir.) upplýsingar breytast milli tímabila. En við fáum hrós (Forseti hringir.) frá alþjóðlegum stofnunum um það hvernig við höfum haldið utan um þessi mál og árangurinn talar sínu máli.