151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:28]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Ráðherra sagði í flutningsræðu sinni að samfélagið væri orðið sjóað í því að taka öllu með fyrirvara og það er þaðan sem ég kem með þetta. Þó að dagsetningarnar séu ónákvæmar, það vanti nákvæmari dagsetningar á afhendingu bóluefna og þess háttar, þá eru forsendurnar samt auðveldlega eitthvað sem hægt er að segja frá. Þegar allir sem eru 16 ára og eldri eru bólusettir a.m.k. einu sinni þá hættum við öllum takmörkunum. Við vitum ekki dagsetningu á því en það er viðmiðið sem við ætlum að hafa. Var bara hægt að svara því í fyrsta skipti í síðustu viku? Hefði ekki verið hægt að segja það t.d. fyrir áramót? Það eru upplýsingarnar sem við höfum reynt að biðja um. Hvernig er skipulagið á því að við komumst út úr þessum faraldri? Og ef við förum í efnahagslegu afleiðingarnar af þessum faraldri, er ég ánægður með árangurinn þar? Nei, það er mikið atvinnuleysi. Að sjálfsögðu erum við ekki ánægð með árangurinn þar, en það liggur ekki hjá hæstv. ráðherra, það er hjá ríkisstjórninni og fjármálaráðherra að eiga þann hausverk. Ég get alveg tekið undir það að við höfum náð mjög góðum árangri í sóttvörnum, sérstaklega út af því hversu fólk hefur verið duglegt að fara eftir sóttvarnaleiðbeiningum, þó að þær hafi verið pínu kaótískar. Það hefur verið mjög erfitt að komast í upplýsingar um nákvæmlega það hvernig maður á að hátta sóttvörnum. Ég var t.d. í sóttkví í síðustu viku. Samkvæmt leiðbeiningum á vefnum covid.is þá hefði ég í rauninni átti að vera aðskilinn frá þeim innan heimilis míns sem voru í sóttkví en ég fékk þær leiðbeiningar frá sóttvarnateyminu að allir á heimilinu ættu að vera í sóttkví. Þetta voru misvísandi upplýsingar. Þetta er vandamálið sem við erum búin að vera að reyna að draga fram, að hafa hlutina skýra en þeir hafa ekki verið það. Nú erum við í gríðarlega óskýru ástandi varðandi einmitt það að sjá á spilin, hvernig þetta verður fram yfir kosningar, sérstaklega efnahagslega. Lausnir eins og t.d. Hefjum störf klárast eftir sex mánuði, það eru kosningar og þá er botninn (Forseti hringir.) dottinn úr þeirri tunnu og við vitum ekki hvað gerist næst. Það vantar allar þessar áætlanir.