151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:30]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Sóttvarnalæknir hefur sagt það allan tímann, hann byrjaði að segja það fyrir ári, að það væri hægt að aflétta öllum takmörkunum innan lands þegar hjarðónæmi hefði náðst. Þá vissum við ekki, virðulegi forseti, að við yrðum komin með bóluefni á þessum tímapunkti. Hann hélt okkur algerlega upplýstum um þennan þátt. Síðan erum við búin að vera að tala um það hér í allan vetur, veturinn 2020 til 2021, hver þessi viðmið eru með hjarðónæmi. Hvaða punktur er það? Eru það 60%, 80%, 75%, hvað er það? Getur hv. þingmaður svarað mér um það? (BLG: Það eru stjórnvöld sem eiga að svara …) Eru það stjórnvöld sem eiga að svara því? Þetta er rannsóknarefni lyfjaframleiðenda og samfélaga heimsins núna hvenær við náum hjarðónæmi. Við getum verið með viðmið sem byggja á þekkingu sem við erum með núna. Við vissum á þessu ári að það fengist töluverð vörn við fyrri sprautuna. Við vissum það á þessu ári. Þannig að upplýsingarnar sem við erum að fá — ég skil vel að hv. þingmaður sé óþolinmóður. Þjóðir heimsins eru óþolinmóðar yfir Covid-19. En ég bið samt um ákveðna sanngirni í umræðunni þegar upplýsingar og þekking er að verða til jafnharðan og að ekkert okkar leyfi sér að standa hér eins og við höfum öll svörin vegna þess að þau eru ekki komin. Það er nefnilega, okkur öllum til upplýsingar og upprifjunar, um að ræða algerlega fordæmalausar aðstæður. Það er óhætt að segja það. Það er heimsfaraldur Covid-19 sem er mesta og flóknasta viðfangsefni mannkynsins frá síðari heimsstyrjöld. Það er bara þannig. Viðfangsefnin eru mögnuð. Viðbrögðin eru stórbrotin vegna þess að vísindin hafa sýnt okkur að við getum tekið á svona hlutum ef við snúum bökum saman. En það að fyllast óþoli yfir því að það séu ekki öll svör komin hér í apríl 2021 finnst mér ekki lýsa miklum skilningi á stöðunni.