151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:33]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Covid er endalaus uppspretta umræðna hér og er það vel. Þannig náum við til lands saman. Það er mikilvægt að vera samstiga í þessari baráttu sem við vonumst öll til að fari að linna. Fyrir ári síðan var óvissan mikil, hræðsla og óöryggi eðlileg tilfinning. Við eygðum ekki þá stöðu sem við erum í núna þegar við erum að verða búin að bólusetja einn þriðja landsmanna. Það var alveg óvíst hvort bóluefni myndi finnast og finnast svona fljótt. Bólusetningaráform okkar eru góð í samanburði við önnur lönd þannig að við erum á réttri leið. Þessi tími hefur hreinlega verið árshátíð vísindamanna, ekki bara baráttan gegn þessari veiru heldur verður sú þekking og reynsla nýtt gegn öðrum sjúkdómum, við þróun bóluefna, í sóttvörnum og fleiru sem er mikilvægt í baráttu sem þessari og skilar okkur áfram. Segja má að þessi heimur hafi stækkað margfalt en við erum í miðjum stormi.

Nú eru forgangshópar í bólusetningar en ég finn hvergi í þeim forgangshópum fólk sem á við geðrænan vanda að etja, er með geðröskun, t.d. heilsukvíða, og hefur verið í meðhöndlun við því. Mig langar aðeins til að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra: Var það eitthvað rætt þegar forgangshópunum var stillt upp í þessari reglugerð? Kom eitthvað til umræðu og er það eitthvað til umræðu að þessi hópur, sem er í mjög viðkvæmri stöðu, sumir hverjir hafa jafnvel lokað sig af, hafa ekki haft samband við sitt fólk eða bara almennt farið út í búð, færist ofar eða að fari inn á þennan lista?