151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:35]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Við höfum í samstarfi, ég og sóttvarnalæknir, lagt fram ákveðna áætlun um forgangsröðun í bólusetningar. Eins og við vitum öll, af því að nú eru meira að segja einhver okkar í salnum farin að fá boðun í bólusetningar, er þessum hópum að vinda fram og við erum komin í sjöunda hóp eða svo. Hóparnir sem eru með undirliggjandi langvinna sjúkdóma eru þeir sem verið er að bólusetja núna og fólk á aldrinum 60–70 ára. Þeir hópar sem hv. þingmaður nefnir eru alveg örugglega að hluta til fólk sem ýmist skilgreinist með undirliggjandi sjúkdóma eða í erfiðri félagslegri stöðu. Sérstaklega er talað um það fólk sem er í erfiðri félagslegri eða efnahagslegri stöðu vegna mögulega langvinnra sjúkdóma sem snúast um geðheilbrigði og af þeim sökum er eðlilegt að það komist framar í þessari röð. Meginmarkmiðið með röðuninni er alltaf að verja það fólk sem er í mestri hættu. Það er alltaf hugsunin. Þess vegna byrjum við á allra elsta fólkinu og þess vegna reynum við að verja heilbrigðisstarfsfólkið til að heilbrigðisstofnanirnar séu sem öruggastar. Síðan förum við eftir þeim upplýsingum og þeirri þekkingu sem liggur fyrir um það hvaða hópar eru viðkvæmastir fyrir Covid-19 og eru líklegastir til að vera útsettir og alvarlega veikir. Þess vegna er uppröðunin með þeim hætti sem hér er talið upp. En hópurinn sem hv. þingmaður nefnir er ekki skilgreindur sem slíkur í forgangsröðuninni.