151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:37]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Eins og hv. þingmaður segir verðum við öll búin að fá bólusetningu í júní, alla vega fyrri sprautuna, og þá getum við aldeilis farið að skunda á Þingvöll og haldið hátíð. Það væri þá alla vega ástæða til þess.

Þá langar mig til að koma aðeins inn á að það er ekki alveg nóg að við öll hér á landi náum þessu hjarðónæmi. Til að halda þessu niðri á heimsvísu þarf allur heimurinn, allir þeir sem lifa á þessari jörð, að komast í skjól. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún viti hvernig þessu vindur fram í sambandi við að bólusetja hópa í minna efnuðum ríkjum heims. Það kom frétt um daginn um að það væri mjög lág prósenta t.d. í Afríku. Ég spyr: Hvert er hlutverk okkar sem þjóðar? Þó að við séum svona pínulítil getum við haft mikil áhrif. Hver er ábyrgð okkar gagnvart því að þessir hópar verði bólusettir og hvaða leiðir eru farnar þá? Við erum í samstarfi við Evrópusambandið í bólusetningum. Fylgjum við þeirra strúktúr í þessu eða áætlun? Getum við eitthvað gert betur til að þessir hópar innan efnaminni landa verði bólusettir fljótt og vel?