151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:42]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Ég held að óhætt sé að segja að á meðan þessi faraldur hefur geisað, og geisar að vissu marki enn, þá hafi þjóðin staðið eins og klettur að baki sóttvarnayfirvöldum og staðið sig mjög vel. Nú erum við farin að sjá til sólar og sólin skín glatt hér á Austurvelli og fólk er farið að safnast þar saman. Ég vil gjarnan deila með hæstv. ráðherra bjartsýni um að við séum farin að sjá fyrir endann á þessu. Engu að síður er það þannig að öll erum við óþolinmóð og öll viljum við einhvern veginn vita hvað bíður. Á blaðamannafundi í Hörpu í síðustu viku, held ég að ég fari rétt með, var glærukynning og m.a. glæra sem bar yfirskriftina Inn í vorið. Menn hafa gjarnan vísað til þess sem nokkurs konar afléttingaráætlunar ríkisstjórnarinnar en engu að síður segir hún afskaplega lítið. Ég myndi kannski vilja fá að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé von á frekari útlistun og úfærslu á afléttingaráætluninni. Þá er ég ekki að biðja um tilteknar dagsetningar því að það veit ég að er mjög erfitt viðfangs en það eru þó tiltekin viðmið sem er hægt að setja um hversu margir hafa verið bólusettir, á hvaða aldri o.s.frv., og ef sá tiltekni árangur næst þá mun þessum og þessum aðgerðum verða aflétt. Er verið að vinna að einhverju slíku plani og ef svo er, gæti hæstv. ráðherra upplýst okkur um hvenær mætti eiga von á því?