151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:44]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Forseti. Ég held að ég segi bara frá því að væntanlega mun ég fara með afléttingaráætlun í ríkisstjórn á morgun þar sem gert verður nákvæmlega það sem þingmaðurinn talar um, að lista upp þessi tilteknu viðmið þar sem má segja að við séum komin yfir fyrsta skrefið sem er 25% snerting með fyrri sprautu, sem leiddi okkur í fyrsta skrefið sem tekið var núna í apríl og síðan vörður inn í sumarið þar sem við erum með kannski 35%, 50%, 75% og það með hvaða hætti má búast við að afléttingar haldast í hendur við það. Ég geri ráð fyrir því að segja frá áætlun af þessu tagi strax eftir ríkisstjórnarfund á morgun eða að hún fari út í fréttatilkynningu. En það hefur verið svona mín hugsun, og ég held að það sé gott af því að það hefur verið gert sums staðar í löndunum í kringum okkur, til að mynda í Finnlandi, að setja áætlunina á samráðsgátt stjórnvalda. Það eru svo mörg sjónarmið, frá atvinnulífinu, menningunni, almenningi, skólum o.s.frv., sem koma inn í áætlun af þessu tagi þannig að ég held að það væri gott að opna umræðuna, þar sem þetta er í raun ekki reglugerðardrög eða neitt slíkt heldur miklu frekar áætlun samfélagsins. En ég held og ég deili því með hv. þingmanni að við höfum öll efni til þess að tala skýrar um það hvaða vörður þetta eru, hvernig þær líta út og hvers er að vænta.