covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Herra forseti. Ég vil fagna þessu ágæta svari ráðherra og er mjög spenntur að sjá hvernig sú áætlun lítur út. Ég held að hún skipti gríðarlega miklu máli jafnvel þótt, eins og ég tók fram áðan, hún sé ekki dagsett, ef við vitum hvaða viðmið eru höfð undir. Ég fagna því sérstaklega að þetta sé að gerast og gæti svo sem sagt: Þótt fyrr hefði verið. En ég ætla ekki að segja það, við skulum bara fagna því ef áætlunin er að koma og ég hlakka til að sjá hana. Eins og margoft hefur komið fram í þessari umræðu er líka mjög mikilvægt að gefa ekki of miklar vonir sem verður erfitt að standa við því að þá verða vonbrigðin svo mikil. Þess vegna er sjálfsagt skynsamlegra að vera frekar á stífari gormunum og geta þá heldur slakað. (Forseti hringir.) Það var engin spurning hér en ég fagna því að áætlunin er að koma fram.