covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður sagði hér, og sagði það ekki, að honum fyndist að þetta hefði mátt koma fyrr og ég er sammála honum. Ég held að það væri alltaf betra. Það er alltaf þessi togstreita að reisa ekki of miklar væntingar, að standa undir því sem maður er að segja en ég held að við höfum núna alveg klárlega öll efni sem þarf til að tala skýrt hvað varðar þetta skref. Ég held við eigum að gera það og ég held að það sé líka mjög mikilvægt að hafa umræðuna í samfélaginu sem opnasta um það vegna þess að við þurfum að geta skipulagt líf okkar, ekki bara atvinnulífið heldur líka hvort við getum haldið stóru partíin sem við erum búin að bíða eftir allt of lengi.