151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:51]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Það eru leiðbeiningar frá framleiðanda um að hafa þrjá mánuði á milli og ég ætla ekki að reyna að útskýra þau mál hér. Það er sannarlega þannig að það er góð vernd gegn alvarlegum sjúkdómi og alvarlegri sýkingu að vera bólusettur, en það er samt sem áður ekki trygging fyrir því að viðkomandi smitist ekki eða smiti ekki. Það vitum við. Það er ekkert til sem heitir 100% vörn. En við vitum að bólusetningar eru fyrst og fremst lýðheilsuaðgerð, fyrst og fremst aðgerð sem snýst um samfélagið í heild. Þó að sannarlega sé hver og einn varinn til að byrja með þá erum við komin á þann stað, þegar við erum komin yfir einhvern tiltekinn hóp eða hlutfall, að geta talist hafa komið samfélaginu öllu í skjól og það er auðvitað markmiðið.

Hv. þingmaður spyr sérstaklega um það þegar umræðan er farin að snúast um tilteknar tegundir af bóluefnum. Það er alveg ótrúlega áhugaverð umræða yfir höfuð. Hugsið ykkur ef við værum alltaf að tala um framleiðendur þegar við kaupum okkur lyf í apóteki, eða hvað það er, og segja: Ég ætla ekki að kaupa af þessu þessum aðila sem framleiðir parasetamól, heldur af hinum aðilanum, af því að ég treysti því fyrirtæki betur o.s.frv. Nú erum við öll orðin sérfræðingar í þessu og umræðan er eins og hún er. En sóttvarnalæknir tekur ákvörðun varðandi hópa og það var alveg gríðarlega mikilvæg vinna sem farið var til að skilgreina frábendingar varðandi AstraZeneca og hvaða hópar væru þar undir. Það er auðvitað mjög mikil ábyrgð hjá heilbrigðiskerfinu okkar, hjá heilsugæslunni, líka sérgreinalæknum að því er varðar það að allar upplýsingar komist til skila varðandi þá einstaklinga sem um ræðir. En við treystum framkvæmdaraðilum, við treystum þeim sem sjá um að halda utan um bólusetningar. Þetta eru í raun og veru snillingar dagsins, þetta fólk sem skipuleggur og fyllir Laugardalshöllina og aðra stóra staði af fólki sem fer í bólusetningar, og standa sig stórkostlega.