covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svörin. En ég vil bara benda henni á, t.d. í sambandi við ofnæmislyf að ég þarf að taka ofnæmislyf og það er ekki sama hvaða ofnæmislyf ég tek, vegna þess að ég veit að eitt virkar og annað virkar ekki og virkar meira að segja illa á mig, þannig að þarna hef ég val. Ég fékk ekki svar við spurningu minni varðandi val á bóluefni, en ég veit að þetta getur verið tilfinningin. Við vitum að talað hefur verið um að virkni lyfja, hvernig þau hafa áhrif, fer eftir því hversu mikið maður trúir á að þau virki. Ég held að það sé miklu betra að leyfa fólki að trúa því að ákveðið lyf virki en að segja við það: Þú færð ekki að velja, og setja það aftast í röðina, og jafnvel ég veit ekki hvað gerist vegna þess að við vitum að við rökræðum ekkert við þá sem eru með mikinn kvíða og annað. Við eigum að leyfa því fólki að velja. Það hlýtur að vera sanngjarnt, a.m.k. að kanna hversu stór hópur þetta er og hvort ekki sé hægt að taka tillit til hans.