covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Það var einhver að benda á það til skemmtunar að ég verð að standa upp í 20–26 skipti í hvert skipti sem við tökum þessa umræðu hér. Ég held að þetta sé í fimmta eða sjötta sinn sem þessi umræða á sér stað. Ég treysti hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni til að fjalla alltaf um réttinn til að velja sér bóluefni því að það gerum við líka reglulega, að ræða þau. Og mín svör eru alltaf eins, þau eru alltaf þau að það hljóti að vera mat þeirra sérfræðinga sem utan um halda að meta hvaða bóluefni hentar fyrir hvaða hóp. Og það er auðvitað fyrst og fremst sóttvarnalæknir sem gerir það og þannig hefur það verið í gegnum þessar bólusetningar og þannig verður það.