151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:55]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir þau svör sem hún hefur gefið hér í dag og fyrir þessa umræðu. Syndin er lævís og lipur var bókartitill á ævisögu Jóns kadetts. Það má til sanns vegar færa að Covid-veiran sé lævís og lipur. Veiran kemur aftan að okkur aftur og aftur og fer ekki eftir neinum lögum eða reglum. Þess vegna er meiri skilningur á því meðal þjóðarinnar að beita þurfi óhefðbundnum aðferðum til að verja heilsu og hagsmuni þjóðarinnar þegar lögin eru hvorki lævís né lipur í baráttunni við veiruna.

Í síðustu viku kynnti ríkisstjórnin hertar aðgerðir á landamærunum tímabundið. Mikilvægt er að aðgerðirnar voru tímabundnar, afmarkaðar og að gripið var til þeirra í því skyni að skapa aðstæður er gerðu yfirvöldum kleift að aflétta mestu takmörkunum innan lands þrátt fyrir mikla útbreiðslu faraldursins erlendis. Í kjölfarið samþykkti Alþingi frumvarp til breytingar á gildandi sóttvarnalögum sem felur í sér forsendur fyrir þeim aðgerðum sem boðaðar voru. Samhliða boðuðum aðgerðum voru markmið ríkisstjórnarinnar í bólusetningum kynnt og blésu flestum von í brjóst. Hér megum við búast við afléttingu allra takmarkana innan lands þegar stærstur hluti fullorðinna hefur fengið fyrri skammt bóluefnisins.

Virðulegur forseti. Hvernig lítur framtíðin út? Nú í vikunni verða um 25.000 manns bólusettir sem gerir nýtt met í bólusetningum í einni viku. Þar af er stór hluti í áhættuhópi vegna veirunnar og mikill léttir að hafa komið þeim hópi í var. Ef við verðum áfram lævís og lipur í baráttunni við veiruna sigrum við að lokum og opnum landið og atvinnulífið, sem skilar okkur bestu lífskjörum sem von er á, tekur við sér. Ég spyr ráðherrann: Hvernig náum við samstöðu þjóðarinnar á lokasprettinum og fáum hana til að trúa á framtíðina?