151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:57]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Það eru ekki litlar spurningar hér í lokin á þessari ágætu umræðu. Það sem við höfum notið í íslensku samfélagi í gegnum þennan faraldur er í raun og veru einstök samstaða. Það er svo mikil samstaða að eftir henni er tekið. Kannski endurspeglar það á einhvern hátt hvers konar samfélag við erum. Við erum tiltölulega fá, við erum upplýst, við erum vel menntuð, við erum tiltölulega vel sett efnahagslega ef marka má meðaltölin en ekki síst höfum við notið mjög góðrar leiðsagnar okkar góða þríeykis sem hefur kappkostað að koma upplýsingum til almennings jafnt og þétt. Við í pólitíkinni höfum tekið ákvörðun um að láta glímuna við faraldurinn ekki snúast um pólitískar keilur heldur um það að gera það sem er rétt. Ef okkur lánast að halda þeim takti til enda er ég vongóð um að við getum horft yfir þessa lotu, þ.e. baráttuna við faraldurinn, og verið stolt af því að hafa gert það vel, að við höfum gert það vel sem samfélag, að við höfum gert það vel sem upplýst samfélag og samfélag sem býr yfir mikilli þekkingu en líka samfélag sem hefur borið gæfu til að gera ekki sóttvarnir að pólitísku bitbeini. Þannig að ég held að ef við höldum þeim takti áfram farnist okkur vel. Við sjáum að enn eru vel yfir 90% sem hafa trú á því sem sóttvarnayfirvöld eru að gera og enn þá sjáum við að traust til stjórnvalda, og ekki síst til heilbrigðiskerfisins, fer vaxandi. Ég held því að þessi ríkisstjórn geti a.m.k. stigið stolt frá borði þegar kemur að kosningum.