starfsmenn í stjórnum opinberra hlutafélaga.
Forseti. Á íslenskum vinnumarkaði hefur vinnandi fólk tryggt aðkomu sína að reglusetningu í gegnum verkalýðsfélög sem semja í gegnum kjarasamninga um kaup og kjör í tilteknum starfsgreinum eða á tilteknum vinnustöðum við atvinnurekendur eða samtök þeirra. Kjarasamningar kveða iðulega á um laun, vinnutíma, kaffi- og matarhlé, orlofsrétt, veikindarétt o.s.frv. En þótt kjarasamningar tryggi almenna aðkomu að reglusetningu tryggja þeir ekki aðkomu að ákvarðanatöku innan vinnustaða sem hafa þó óneitanlega mikil áhrif á líf starfsfólks. Þess vegna hef ég lagt fram þingsályktunartillögu um atvinnulýðræði sem er í meðferð hv. velferðarnefndar og ég vona nú að sú hv. nefnd fari fljótlega að skila því máli hingað inn í þingsal. Það er mikilvægt að tryggja aukið lýðræði og gagnsæi á vinnustöðum og það má gera með ýmsum hætti, t.d. með setu starfsmanna í framkvæmdastjórnum, eftirlitsstofnunum fyrirtækja, lögbinda ráðgjafarrétt eða setu í stjórn.
Nú vill svo til að hæstv. ráðherra fer með hlut ríkisins í opinberum hlutafélögum sem eru nokkur og þar eru hæg heimatökin, sé vilji til þess, að auka atvinnulýðræði og þar með lyfta upp aðkomu starfsfólks. Þess vegna spyr ég hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvort hann sé til í að skoða það að við færum í þessa átt og spyr:
Í hvaða opinberu hlutafélögum hafa starfsmenn rétt til að tilnefna fulltrúa í stjórn? Samanber t.d. lög um Ríkisútvarpið, því að þannig er það þar.
Telur ráðherra rétt í ljósi sjónarmiða um atvinnulýðræði að starfsmenn eigi að hafa lögbundinn rétt til að tilnefna fulltrúa í stjórn opinberra hlutafélaga eins og til dæmis Isavia ohf.?
Hvaða réttindi og skyldur ættu slíkir stjórnarmenn að hafa? Ættu að vera nokkur stærðarmörk á þeim félögum? Það er þekkt út í heimi að það eru oft stærðarmörk á fyrirtækjum í hverjum starfsmenn hafa fulltrúa í stjórn.
Að lokum: Telur ráðherra að það að veita starfsmönnum opinberra hlutafélaga rétt til að tilnefna fulltrúa í stjórn geti verið liður í aukinni lýðræðisvæðingu vinnumarkaðarins þar sem það verði meginreglan að starfsmenn eigi fulltrúa í stjórn fyrirtækja?
Þetta er að einhverju leyti nýtt fyrir okkur þó að við þekkjum þetta, eins og hér var nefnt, úr Ríkisútvarpinu. En þetta er nú ekki byltingarkenndari hugmynd en svo að í Þýskalandi, sem er tiltölulega íhaldssamt samfélag, hefur atvinnulýðræði í einhvers konar mynd, þar með talið seta starfsmanna í stjórn, verið ríkjandi í ákveðnum fyrirtækjum af ákveðinni stærðargráðu frá seinna stríði.