starfsmenn í stjórnum opinberra hlutafélaga.
Virðulegi forseti. Ég tel að það sé áhugavert að ræða þetta efni en ég ætla að byrja á því að bregðast við spurningum sem hér eru settar fram og svara því þannig að almennt hafa starfsmenn ríkisfyrirtækja ekki sérstakan rétt til að tilnefna fulltrúa í stjórnir. En félögin geta hins vegar ákveðið að fulltrúar starfsmanna eigi rétt á setu á stjórnarfundum, t.d. sem áheyrnarfulltrúar. Eina undantekningin er sú sem hv. þingmaður nefndi, að starfsmannasamtök Ríkisútvarpsins tilnefna einn fulltrúa sem hefur tillögurétt en ekki atkvæðisrétt í stjórn Ríkisútvarpsins. Almennt gildir að félög í eigu ríkisins fara að hlutafélagalögum og eru slík ákvæði ekki fyrir hendi í hlutafélagalögunum í dag. Þetta þýðir þá um leið að almennt gildir sú regla að hæfir einstaklingar sem gefa kost á sér eru kjörnir á aðalfund af hluthafanum og ekki aðrir.
Allir einstaklingar í stjórnum opinberra félaga bera sömu réttindi og skyldur gagnvart félaginu samkvæmt lögum um hlutafélög. Í almennri eigendastefnu félaga í eigu ríkisins eru settar fram kröfur og viðmið eigenda til starfseminnar til stjórnar og stjórnarhátta. Í eigendastefnunni, í kafla 4.1 og 4.2, er sérstaklega fjallað um réttindi og skyldur sem og ábyrgð og hæfi einstaklinga í stjórnum ríkisfélaga. Mikilvægt er að einstaklingar sem taka að sér stjórnarstarf í ríkisfyrirtækjum séu hæfir, með reynslu og þekkingu á starfsemi félagsins og gagnsæjum stjórnarháttum.
Allt er þetta miðað við umhverfið eins og það er skrifað út í lögum í dag og hvernig eigendastefnan er í dag þannig að ég dreg það hér fram að ef til þess kæmi þá myndum við þurfa að tryggja þetta í lagarammanum í dag, ef við værum að búa til sérstakt stjórnarsæti fyrir fullgildan stjórnarmeðlim sem kæmi eftir tilnefningu frá t.d. starfsmannasamtökum.
Ég vil sömuleiðis láta þess getið hér að starfsmenn fyrirtækja sem sitja einnig í stjórnum fyrirtækja geta orðið vanhæfir til ákvarðanatöku vegna stöðu sinnar sem starfsmenn. Þetta getur átt við, svo dæmi sé tekið, ef starfsmaður hefur sótt um stöðu forstjóra sem stjórnin ætlar að fara að ráða til félagsins. Þetta getur líka átt við ef unnið er í stjórn að endurskipulagningu og breytingum í félaginu sem hafa, svo dæmi sé tekið, áhrif á fjölda starfsmanna eftir að breyting hefur gengið í gegn og þar með getur endurskipulagning haft áhrif og jafnvel bein áhrif á starf einstaklingsins. Þetta er eitthvað til að hafa í huga.
Samkvæmt lögum um hlutafélög skulu einstaklingar sem missa hæfi vegna tengsla eða annarra hagsmuna víkja úr stjórn félagsins tímabundið á meðan málið er þar óafgreitt. Það getur þess vegna verið ákveðnum vandkvæðum bundið að ná því fram að fá virkilega virkt lýðræði inn í stjórnina þar sem tekið er tillit til allra sjónarmiða við ákvarðanatöku. Sérstaklega á þetta við ef ákvarðanir sem eru til umræðu í stjórninni hafa bein áhrif á starfsmennina, á starfsemina sem slíka, og einkum ef viðkomandi yrði beinlínis vanhæfur.
En með þessu vil ég ekki varpa skugga á mikilvægi þess að rödd starfsmannanna heyrist líka við slíka ákvarðanatöku. Það er spurning hvernig stjórn og framkvæmdastjóri virkja það samráð sem er mikilvægt við stefnumótun og breytingar í áherslum í starfsemi félaga við starfsmannafélag eða lykilstarfsmenn hverju sinni. Þetta getur verið breytilegt frá einu félagi til annars.
Í blálokin held ég að það geti verið ótvíræðir kostir í þessu fyrirkomulagi að tryggja með formlegum hætti einhvers konar lágmarkssamráð og -samtal, að það sé formbundið í félögum hvernig samráð er tryggt. Við erum jú í mörgum tilvikum að tala um lífsviðurværi fólks (Forseti hringir.) og oft og tíðum eru stjórnir í of litlum tengslum við hinn almenna starfsmann, þannig að mér finnst þetta langt því frá að vera galið. En útfærslan getur verið dálítið snúin.