151. löggjafarþing — 87. fundur,  27. apr. 2021.

endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.

53. mál
[14:54]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka aftur spurninguna og stórt er spurt: Fullveldi, frelsi, sjálfstæði. Þetta eru stór og mikil orð og það eru mikilsverðir hagsmunir á bak við þau en það er líka hægt að toga þau og misnota á ýmsan máta. Ég fer alltaf að hugsa um Rósu í heiðinni þegar ég hugsa um Evrópusambandið. Halldór Laxness skrifaði þetta mikla verk, Sjálfstætt fólk, og ég var nú að fletta þessu upp á meðan hv. þingmaður var að spyrja mig og mig langar að fara með það sem hefur verið mér hugleikið. Rósa er gift manni sem hefur þessa miklu frelsishugsjón, sjálfstæðishugsjón, þarna í heiðinni. Hún sveltur, hann er vondur við hana og hún kvelst en svo koma stúlkur þarna í heimsókn og þær leiða hana við hönd sér, og hefst þá lesturinn, með leyfi forseta:

„… en stúlkurnar tóku Rósu við hönd sér og leiddu hana útúr bænum, þær leiddu hana niðrað bæarlæknum og settust hjá henni, og sögðu að ósköp væri yndislegt að hafa svona lítinn læk alveg við bæinn, hann væri svo vinalegur þessi litli lækur. Svo spurðu þær hana hvernig henni liði, og hún sagði: vel, og þær spurðu hana af hverju hún væri svona bólgin í framan, og það var af tannpínu, og þær spurðu hvernig hún kynni við sig í heiðinni, og hún saug uppí nefið og varaðist að líta upp, og sagði að það væri sosum ósköp frjálst.“