151. löggjafarþing — 87. fundur,  27. apr. 2021.

endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.

53. mál
[14:56]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það mál sem við erum með til umræðu í dag lýtur einfaldlega að því að forsætisráðherra verði falið það verkefni að skipa þriggja manna nefnd í samráði við þingflokka til að stýra undirbúningsvinnu um að hefja aftur aðildarviðræður. Nefndin fái það hlutverk að meta hvenær og hvernig eigi að hefja viðræðurnar aftur. Málið lýtur sem sagt, eins og rakið er í þingsályktunartillögunni, einfaldlega að því að hefja undirbúning að endurupptöku viðræðna um aðild að ESB og að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram ekki seinna en í janúar 2022; að þjóðin fái að taka ákvörðun og sú ákvörðun verði tekin að lokinni almennri umræðu. Slík umræða er alltaf af hinu góða og í sjálfu sér dálítið sérstakt að hér þurfi að ræða það hvort ræða eigi þetta mál. Þessi ákvörðun er svo veigamikil, hún er svo stór og hún hefur svo mikla þýðingu að umræðan verður að fá að eiga sér stað. Það er vissulega stór og veigamikil ákvörðun að segja já, en það er svo sannarlega stór ákvörðun að segja nei og það er bæði stór og vond ákvörðun, vil ég leyfa mér að segja, að taka þennan ákvörðunarrétt af fólki, að það fái ekki að taka afstöðu til þessa máls.

Evrópusambandið er eitt mikilvægasta friðarbandalag sögunnar, styður frelsi, öryggi og réttindi almennings þvert á landamæri og það er, að mínu mati, óskaplega falleg hugsjón sem hefur reynst Evrópu allri dýrmæt. Íslendingar eru sjálfstæð þjóð og það eru vitaskuld þær þjóðir sem tilheyra Evrópusambandinu einnig. Þetta eru sjálfstæðar og fullvalda þjóðir. Þar eru þjóðir sem telja og vita að í samstarfi vegnar þeim einfaldlega betur, að ríkin eru sterkari í samvinnu en ein síns liðs eða jafnvel einangruð. Við viljum eiga sæti við borðið í samfélagi þjóðanna eins og aðrar sjálfstæðar og fullvalda þjóðir. Það er ástæða þess að Ísland hefur sem fullvalda þjóð valið að vera hluti af Sameinuðu þjóðunum, valið að vera hluti af NATO og valið að vera hluti af öðru því alþjóðasamstarfi sem við tökum þátt í, Norðurlandaráði, Schengen, EES, Mannréttindadómstóli Evrópu og þannig mætti lengi telja. Það er ástæða þess að við höfum valið að standa ekki fyrir utan mikilvægt samstarf heldur frekar að taka þátt í því og geta þannig haft áhrif á hagsmuni okkar og framtíð.

Segja má að tilgangur þessarar tillögu sé beint og óbeint sá að styrkja fullveldi landsins en um leið að efla stjórnmálaleg tengsl, að treysta varnir, að örva viðskipti og styrkja þannig efnahag okkar. Tilgangurinn er að tryggja framgang markmiða Íslands í loftslagsmálum. Tilgangurinn er að vera með í stað þess að standa fyrir utan. Af þeirri ástæðu teljum við að við ættum að fara í aðildarviðræður við ESB og kanna hver niðurstaðan verður í kjölfarið. Við þekkjum það öll að við erum nú þegar komin með annan fótinn inn með samstarfinu um Evrópska efnahagssvæðið. Í mínum huga er það þannig að það sem eftir stendur, það sem upp á vantar, eru kannski helst lýðræðislegu áhrifin sem við fengjum með inngöngu.

Andstæðingar sambandsins hafa löngum talað niður áhrif smárra þjóða þar og reyndar bara í alþjóðasamstarfi almennt séð. Því hefur margsinnis verið svarað. Smáar þjóðir hafa í mörgum tilvikum og oftast nær aukið vægi sem þátttakendur í fjölþjóðasamstarfi. Rödd þeirra verður sterkari innan samstarfs en fyrir utan það. Evrópusambandið hefur gengið lengra þar, held ég að segja megi með allri sanngirni, og stendur framar öðrum í því að tryggja áhrif allra, t.d. hafa allar þjóðir nákvæmlega einn fulltrúa í hverju ráði ráðherraráðs sem er þýðingarmikið atriði.

Mig langaði aðeins til að koma inn á þá staðreynd að löggjöf okkar er nú þegar töluvert mótuð af evrópskri löggjöf sem mótar réttarreglur á flestum sviðum þjóðlífsins. Það skref sem felst í aðild er að þessu leyti mun minna en það sem þegar hefur verið stigið, og var stigið á fyrri hluta tíunda áratugar síðustu aldar eins og við þekkjum. Ávinningurinn er í mínum huga pólitískur og lýðræðislegur, með auknum áhrifum, og hann verður efnahagslegur.

Mér finnst skipta máli í þessu samhengi að horfa til þess að kynslóðirnar sjá þetta mál stundum ólíkum augum. Ég nefni í því sambandi Brexit-kosningarnar, þ.e. að ungt fólk kaus þar með öðrum hætti en það eldra. Unga fólkið vildi og valdi alla þá góðu kosti sem þessu samstarfi fylgja. Við sjáum það líka, og það held ég að spegli ákveðna sýn á samstarf þjóða, að unga fólkið óttast ekki samstarfið, óttast ekki ávinninginn af því að eiga í samstarfi við aðrar þjóðir. Í Brexit-kosningunum var það áberandi að unga fólkið vildi halda samstarfinu áfram.

Virðulegi forseti. Í ræðum hér hefur mátt skilja þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem svo að samstarf á alþjóðavettvangi beri nánast að forðast og að slíkt samstarf felist í engu öðru en viðskiptum, í fríverslunarsamningum. En hvað hefur þátttakan í innri markaði Evrópusambandsins fært okkur? Hún hefur fært okkur fjórfrelsið, frjálst flæði fólks, vöru, þjónustu og fjármagns. Þess vegna getum við t.d. lært og starfað hvar sem er í Evrópu ef okkur hugnast og það gagnast ekki síst unga fólkinu sem fer út í nám, vill stofna fyrirtæki og sér fyrir sér framtíð á Íslandi og í Evrópu. Alþjóðlegt samstarf hefur nefnilega svo margar jákvæðar afleiðingar eins og við þekkjum og sást svo vel í afstöðu unga fólksins til Brexit. Mér fannst þess vegna sérstakt að hlusta á hæstv. utanríkisráðherra íslensku þjóðarinnar sem stóð hér í þingsal og talaði eins og samstarf þjóðanna og Evrópusamstarf snúist í reynd um lítið annað en viðskipti. Viðskipti eru vitaskuld veigamikill þáttur og grundvallarþáttur en hér talaði rödd Íslands í utanríkismálum, rödd Íslands í þróunarmálum, rödd Íslands í alþjóðlegum mannréttindamálum; mér fannst þessi nálgun hans augljóslega mjög þröng en um leið dálítið dapurleg, hvernig hæstv. utanríkisráðherra þjóðarinnar sér Ísland í samstarfi við aðrar þjóðir.

Ég sé að ég er að renna út á tíma. Ég fæ þá kannski bara að ljúka máli mínu á því að segja að ég tel mikilvægt að þessi umræða fái að eiga sér stað, eins og ég nefndi í byrjun; hvað þetta þýðir, hverjir séu kostir þessa og gallar. Ég sé að vísu engan kost við það að ætla að fara að draga viðræðurnar en ég heyri að það eru einhverjir sem draga það í efa. En hverjir eru það sem munu hagnast á inngöngu? Í mínum huga er það skýrt að ungt fólk mun hagnast á þeim tækifærum sem fylgja, að heimili landsins munu hagnast á gengisstöðugleika og vaxtalækkun sem fylgir upptöku evrunnar, að fyrirtækin öll í landinu ættu að sjá hag sínum betur borgið í viðskiptaumhverfi sem einkennist af fyrirsjáanleika sem fylgir auknum stöðugleika. Bændur munu hagnast á styrkjakerfi og þjóðin öll mun hagnast á auknum lýðræðislegum áhrifum okkar á þá löggjöf sem við innleiðum.

Virðulegi forseti. Frá lokum síðustu heimsstyrjaldar hefur Ísland verið þátttakandi í margvíslegu fjölþjóðlegu samstarfi. Tilgangurinn og markmiðið og ávinningurinn hefur alltaf verið hinn sami: Sterkari staða landsins í samfélagi þjóðanna. Við erum sterkari í stjórnmálalegu tilliti og sterkari í menningarlegum efnum. Við erum sterkari hvað varðar öryggi og varnir og við erum vitaskuld sterkari að því er varðar efnahags- og viðskiptamál. Samstarfið í öllum þessum tilvikum hefur styrkt fullveldi landsins. Þessi samvinna hefur styrkt rödd Íslands á alþjóðavettvangi og gert okkur sterkari og ríkari og um það snýst málið.