151. löggjafarþing — 87. fundur,  27. apr. 2021.

endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.

53. mál
[15:18]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég minnist þess ekki að hafa sagt að þjóðin væri skrýtin en við getum sagt að hún sé sérstök. Þetta er einstök þjóð að mínu viti og mér þykir vænt um hana. En ég get upplýst það strax að ég hef alltaf verið tilbúinn til að spyrja þjóðina að því hvort hún vilji ganga í Evrópusambandið. Það er spurningin sem ég vil spyrja. Ég myndi styðja slíka spurningu: Vilt þú ganga í Evrópusambandið? Ég hef ekkert á móti því að þjóðin svari slíkri spurningu en það kallar auðvitað á umræðu.

Varðandi atvinnulífið: Við erum ekki bundin öllum sömu reglum og Evrópusambandsríkin, það er fjarri lagi. Það er fleira sem hefur áhrif á atvinnulífið en bara það sem tengist innri markaðinum og EES-samningnum þannig að ég held að það sé ekki þannig. Við höfum það frelsi að fara annað. Við höfum frelsi umfram Evrópusambandsríkin. Við höfum meira tollfrelsi, við erum ekki bundin af ákvörðunum Evrópusambandsins um það. Það kann kannski að skipta máli í því að okkur vegnar vel.

En ég hef verulegar áhyggjur af því, hvort sem það er rangt hjá mér eða rétt, að dýnamíkin í Evrópu sé lítil og að hún sé íþyngjandi. Staðreyndin er sú að Evrópa hefur dregist aftur úr og það er áhyggjuefni. Evrópa hefur svona verið miðpunktur heimsins. Ég er ekki að segja að ekki sé hægt að reisa það við og jafnvel innan Evrópusambandsins en engu að síður töldu Bretar hagsmunum sínum betur borgið með meira frelsi fyrir utan Evrópusambandið. Sjáum hvernig þeim kemur til með að vegna, ég er mjög áhugasamur um að sjá það.