endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Enn þakka ég hv. þingmanni fyrir svarið. Já, þetta er býsna flókið mál. Ég átta mig samt ekki alveg á því hvað hv. þingmaður er að fara í því að það séu alls konar aðrar reglur sem gildi um atvinnulífið í Evrópu en hér heima. Hann hlýtur þá að vera að vísa í einhverjar reglur sem einstök þjóðríki setja sjálf því að við erum undir nákvæmlega sama ramma og atvinnulífið í Evrópu með EES-reglunum sem varða innri markaðinn. Það hlýtur þá að vera eitthvað annað sem liggur einmitt í því að þjóðirnar þarna ráða sér sjálfar. Varðandi Bretland og Brexit: Þó að ég geti alveg fallist á að fullsnemmt sé að dæma um það þá lofa fyrstu skref Breta utan Evrópusambandsins ekki allt of góðu um það hvernig þeim muni reiða af.
Síðan er það alltaf spurningin um það hvenær eigi að ræða þessi mál. Ég tók eftir því að hv. þingmaður sagði: Það kann að vera að einhvern tímann í framtíðinni þurfum við að ræða þetta, að þá verði aðstæður orðnar öðruvísi. Einhvern veginn finnst mér að þeim sem eru á móti þessari umræðu og þessari aðild — ég vil ekki gera hv. þingmanni upp orð, hann er ekki á móti umræðunni — finnist aldrei rétti tíminn fyrir umræðuna. Það er ekki rétti tíminn þegar það gengur illa, það er ekki rétti tíminn þegar það gengur vel og það er yfirleitt aldrei rétti tíminn. Það væri kannski forvitnilegt að vita hvenær þessi rétti tími gæti verið, hverjar aðstæður þurfi að vera til að réttlætanlegt sé að ræða þessi mál að mati hv. þingmanns.