endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að það sé öllum ljóst hvernig færi fyrir íslenskum sjávarútvegi ef við gengjum í Evrópusambandið. Það er engin tilviljun að okkar ágæti sjávarútvegur og fulltrúar hans hafa bent á ókosti þess að ganga í Evrópusambandið. Þeir þekkja þessi mál manna best og hafa sýnt fram á með mjög góðum rökum hvernig færi fyrir íslenskum sjávarútvegi ef við gengjum í Evrópusambandið. Það er alveg ljóst að opnast myndi fyrir fjárfestingar erlendra aðila í fiskveiðum á Íslandi. Landhelgin yrði opnuð fyrir erlendum ríkjum þegar kemur að fiskveiðum og við værum að sjá hér fiskiflota Spánverja, Frakka og fleiri aðila við fiskveiðar á Íslandi, við sem höfum barist fyrir því að víkka út landhelgi okkar áratugum saman og hefur það kostað miklar fórnir, ef svo má að orði komast.
Þetta liggur alveg ljóst fyrir, hv. þingmaður. Þetta liggur alveg ljóst fyrir og það er alveg ljóst mál að ef við þyrftum ekki að hafa neinar áhyggjur af því að þessi mál færu á hendur ráðamanna í Evrópu væri sjávarútvegurinn ekki að koma þessum skilaboðum á framfæri, sem eru vel unnin og vel rökstudd, þess efnis að það sé mikið áhyggjuefni að ganga í sambandið. Fjárfestingar erlendra aðila yrðu leyfðar í sjávarútvegi og við vitum hvernig það færi, smám saman myndu erlendir aðilar eignast hér veiðiheimildir. Ég held að það sé alveg ljóst, þannig að margt ber að varast í þeim efnum. Það er ljóst með veiðikvóta og annað slíkt að slíkar ákvarðanir eru teknar á sameiginlegum vettvangi sambandsins.