endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég kom ítarlega inn á viðskiptasamninga, samningsfrelsi þegar kemur að viðskiptasamningum Íslands og að það er dæmi um það sem við afsölum okkur, þ.e. við getum ekki samið sérstaklega við önnur ríki um viðskipti og fríverslunarsamninga ef við gerumst aðilar að Evrópusambandinu. Þetta þekkir hv. þingmaður og veit mætavel. Við höfum náð mjög góðum árangri sem þjóð í því að gera fríverslunarsamninga. Þeir hafa verið mjög svo jákvæðir fyrir okkur sem þjóð og fyrir velferð þjóðarinnar. Ég lauk einmitt ræðu minni áðan á þann veg að það ætti að vera forgangsmál okkar að leita eftir fríverslunarsamningi. Við höfum mjög góðan fríverslunarsamning við Evrópusambandið. Hann hefur nýst okkur vel og við eigum að viðhalda honum að mínum dómi. Við eigum auk þess að reyna að ná góðum samningum við önnur ríki, eins og Bandaríkin sem ég nefndi áðan. Við höfum náð samningum við Kína. Við hefðum aldrei náð þeim samningi við Kína ef við hefðum verið í Evrópusambandinu, (Gripið fram í.) svo dæmi sé tekið. Ég nefni sem dæmi samninga við Asíu sem væri mjög svo eftirsóknarvert að leita eftir. Allt þetta getum við gert í krafti okkar sem sjálfstæðrar, fullvalda þjóðar. En ef við værum innan Evrópusambandsins, sem hv. þingmaður er svo hrifin af, væri þetta ekki gerlegt.
Ég vona að þetta svari einni af spurningum hv. þingmanns þegar kemur að afsali. Það er klárt að við höfum afsalað þessu máli og, svo að ég noti þau orð aftur, það er alveg ljóst að þá mun það gerast að við getum ekki gert góða fríverslunarsamninga. Ég vonast svo sannarlega til þess að við náum t.d. góðum samningi við Bandaríkin sem hafa sýnt (Forseti hringir.) mjög jákvætt frumkvæði í því að gera fríverslunarsamning við okkur. (Forseti hringir.) Það gætum við t.d. ekki gert ef við værum aðilar að Evrópusambandinu, svo að það komi skýrt fram.