151. löggjafarþing — 87. fundur,  27. apr. 2021.

endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.

53. mál
[17:26]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Það er eitt atriði sem ég er að velta fyrir mér, ef við bara leitumst við að dýpka umræðuna örlítið og veltum fyrir okkur einum afmörkuðum þætti, og það er það hvernig hv. þingmaður sér fyrir sér möguleika íslensks almennings til að fara fram á þjóðaratkvæðagreiðslu um hin og þessi mál sem ákveðin verða á sameiginlegum vettvangi Evrópusambandsins ef við verðum aðilar.