endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég ætla aðeins að skýra hugsun mína betur í þessu. Dæmin sem hv. þingmaður vísar til eru þjóðaratkvæðagreiðslur sem varða breytingar á sáttmálum sambandsins eins og í Danmörku. Danir tóku ákvörðun um að standa utan tiltekinna þátta Maastricht-samningsins með þjóðaratkvæðagreiðslu. Það sem ég er að vísa til er það að munurinn á ESB og EES er m.a. sá að í ESB hefur sameiginleg löggjöf í mjög mörgum tilvikum bein réttaráhrif í öllum aðildarríkjunum, bein réttaráhrif. Það þarf ekki að fara í gegnum hefðbundið lagasetningarferli með sama hætti og gerist í EES. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður hafi velt því fyrir sér hversu mikið svigrúm til að kalla fram þjóðaratkvæðagreiðslur um einstök mál myndi þrengjast með því að ganga inn í stofnanaumhverfi Evrópusambandsins, stjórnskipulag Evrópusambandsins, sem er allt annað en annað milliríkjasamstarf sem við eigum aðild að, er síns eigin eðlis, eins og sagt er, og felur í sér miklu yfirþjóðlegri áhrif á löggjöf einstakra aðildarríkja en nokkur dæmi eru um í öðru alþjóðasamstarfi.