endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.
Forseti. Ég þakka þessa spurningu. Ég vil undirstrika það og draga fram, eins og ég kom inn á áðan, að árið 2009 var það skoðun mín og er enn að við hefðum átt að spyrja þjóðina að því hvort hefja ætti ferlið. Það var ekki gert og ég held að það hafi verið mikil mistök. Við erum svolítið að leiðrétta það. Við sem erum þessu fylgjandi verðum líka að horfast í augu við það að ferlið hefur ekki verið afgreitt þannig að það gæti stutt við málið, þ.e. stutt við það að við gætum dregið fram sem flestar og mestar upplýsingar fyrir þjóðina. Ég held einmitt að umræðan um þetta mál okkar Viðreisnarfólks dragi fram hversu mikilvægt það er að afla upplýsinga, afla skilnings, kortleggja kostina og gallana áður en við leggjum af stað. Ég ætla ekki að láta fleipur og falsfréttir ráða því hvernig verður kosið um aðild.
Ég vil að þjóðin fái tækifæri, alveg eins og ég sagði á sínum tíma, til að segja sitt í upphafi og ef hún segir já, að hún eigi líka lokasvarið. Ég held að það sé mjög farsælt ferli. Það er mjög gegnsætt ferli. Það þýðir að treysta þjóðinni til að taka ákvörðun um sína framtíð, um sína hagsmuni. Þannig að: Já, ég tel tvímælalaust að þetta sé rétta leiðin til að gera þetta. Ég vil minna á að enginn einn utanríkisráðherra getur dregið upp úr skúffu sinni plagg og sagt í þágu síns stjórnmálaflokks eða til heimabrúks: Heyrðu, nú ætlum við ekki að fylgja eftir þeirri þingsályktun sem var samþykkt á sínum tíma. Þingið þarf að koma að því. Þingið hefur aldrei dregið þessa þingsályktun til baka og við erum líka að vinna út frá því.