endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Þessu máli hefur verið haldið jafnt og þétt á lofti alveg frá því að því var vísvitandi strandað. Það hefur alltaf verið mikill stuðningur við málið meðal þjóðarinnar, a.m.k. að klára aðildarferlið, að þjóðin fái tækifæri til að skoða málið. Ég skil það ekki enn þann dag í dag af hverju ágætir menn og konur eru á móti því að þjóðin fái tækifæri til að sjá samninginn, meta hagsmuni sína. Af hverju er íslenska þjóðin verr til þess fallin en norska þjóðin sem hefur fengið að gera það í tvígang? (Gripið fram í.) Af hverju eru menn svona hræddir við það? Ég verð líka að segja að ríkisstjórnir og þingmenn utan Sjálfstæðisflokksins hafa unnið að því að koma málinu aftur á dagskrá, aftur og aftur, en alltaf í mjög harðri andstöðu ákveðinna hópa og að mínu mati eru hagsmunir þjóðarinnar settir skör lægra en pólitískir hagsmunir flokkanna.
Menn rísa upp á afturlappirnar við það eitt að við setjum þetta mál á dagskrá á svona hógværan hátt, aðeins að spyrja þjóðina og svo fáum við kannski aftur tækifæri til að spyrja. Þá rísa allir upp á afturlappirnar einhverra hluta vegna. Ég verð að segja að í þessu samhengi koma orð Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra mér í hug, um að sérhagsmunahópar hafi hér mikil völd. Ég held að hægt sé að tengja það beint við þetta mál.