breyting á embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins.
Herra forseti. Ég mæli fyrir þingsályktunartillögu um breytingu á embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins. Nýlega var samþykkt frumvarp hér í þingsal og lögin taka gildi 1. maí. Einhverjum gæti því fundist undarlegt að ég væri að mæla fyrir breytingu í aðra átt á embætti skattrannsóknarstjóra. Þetta þingmál hefur verið á dagskrá nokkurra þingfunda og var á dagskrá áður en stjórnarfrumvarpið, um að renna skattrannsóknarstjóra undir Skattinn, kom til atkvæðagreiðslu hér í salnum. Ég ákvað þó að halda því til streitu að mæla fyrir þessu máli þó það væri ekki nema bara til að sýna að það er þessi leið sem ég og flutningsmenn, sem er þingflokkur Samfylkingarinnar, hefðum viljað fara og við gagnrýnum það hvernig staðið var að hinum lögunum sem voru samþykkt hér og taka gildi 1. maí. Þar virtist útgangspunkturinn vera, þegar kom að þeim hluta þeirra laga sem snúa að stofnanagerðinni og málsmeðferðum, að það þyrfti bara að velja um það hvort skattrannsóknarstjóri ætti að fara undir Skattinn eða undir héraðssaksóknara. Ég er sammála því að það var þó illskárra að renna skattrannsóknarstjóraembættinu undir Skattinn en að fara í hina áttina en allra best hefði verið að fara þá leið sem ég er hér að mæla fyrir, sem er að embættinu verði veitt ákæruvald og heimild til saksóknar í þeim málum sem það rannsakar. Þessi þingsályktunartillaga gengur út á það að embætti skattrannsóknarstjóra sé enn þá sjálfstætt embætti en ekki deild inni í Skattinum eins og það verður núna frá 1. maí.
Á 150. þingi mælti ég fyrir svipaðri þingsályktunartillögu sem gekk út á það sama sem ekki náði fram að ganga. Ég á ekki von á því að þessi þingsályktunartillaga nái fram að ganga. Hins vegar er það þá bara algerlega á hreinu, og enginn velkist í vafa um það, að það er þessi leið sem ég hefði viljað fara og við í Samfylkingunni. Við hefðum viljað styrkja embætti skattrannsóknarstjóra en ekki veikja það og draga úr því tennurnar eins og ég skil lögin sem taka gildi nú 1. maí. Það er verið að milda refsingar, dreifa sérþekkingu og þar fyrir utan eru lögin mjög óskýr og ég spái því að það komi upp mikil vandræði við framkvæmdina.
Í meira en aldarfjórðung hefur reglulega verið vakin athygli á nauðsyn þess að uppræta augljósan tvíverknað í rannsókn á skattsvikum og efnahagsbrotum og útgáfu ákæra á því sviði. Það hefur verið talað um þetta í þingmálum sem og mörgum skýrslum og greiningum. Fyrirkomulagið hér á landi er seinvirkt og kostnaðarsamt og hvorki hinu opinbera né meintum sakborningum í hag. Með löngum málsmeðferðartíma vex auk þess hættan á að réttarspjöll verði sem leiði til mildari dóma en ella eða jafnvel sýknu eins og dæmi eru um.
Við höfum horft á það í stórum málum sem skattrannsóknarstjóraembættið hefur verið að glíma við, t.d. í Panama-skjölunum, að það náðist ekki að vinna úr öllum þeim málum og hefði mátt styrkja embættið enn frekar til þess að taka á þeim málum. Sama má segja um fjárfestingarleið Seðlabankans. Vegna fjárskorts og manneklu náðist ekki að vinna úr þeim málum eins og besti kostur hefði verið og það mun auðvitað alls ekki gerast þegar embættið er komið sem deild undir Skattinn, hef ég trú á. Ég vona auðvitað að ég hafi rangt fyrir mér en því miður eru allar líkur á að svo sé ekki.
Samkvæmt upplýsingum frá skattrannsóknarstjóra er það svo að þrátt fyrir að málum frá embættinu sé samkvæmt orðanna hljóðan vísað til rannsóknar héraðssaksóknara sé almennt ekki um að ræða rannsókn málanna frá grunni hjá því embætti heldur séu rannsóknirnar alla jafna reistar á þeirri rannsókn sem skattrannsóknarstjóri hefur framkvæmt og lýst er í skýrslu hans vegna viðkomandi máls. Þannig hefur það verið og þannig er það núna, fram til 1. maí, að öll mál, smá og stór, eru rannsökuð af skattrannsóknarstjóra og það tryggir ákveðna samfellu. En þegar nýju lögin taka gildi þá verður það ekki þannig heldur leikur bara vafi á því hver á að fara með stóru málin og það leikur líka vafi á því hvernig á að meta hvaða mál eru stór og hver eru smærri sem mættu fara í sektarmeðferð.
Eins og ég hef sagt, forseti, hefur það verið sagt í nokkrum útgefnum skýrslum að best af öllu væri að gefa skattrannsóknarstjóra ákæruvald til að flýta fyrir málunum og það væri óþarfa tvíverknaður að héraðssaksóknari tæki málin upp og kalli aðila til sín öðru sinni. Það tefur. Þetta hefur líka orðið til þess að á borði héraðssaksóknara hefur bunkinn staflast upp og það er auðvitað vandinn í málinu. En til þess að leysa það hefðum við í Samfylkingunni viljað styrkja skattrannsóknaembættið til að ljúka málunum með ákæruvaldi en ekki minnka þennan stabba með því að milda refsingar við skattalagabrotum eins og meiri hlutinn hefur ákveðið að gera og þau lög taka gildi 1. maí eins og ég hef áður komið að í þessari ræðu.
Herra forseti. Lítandi til reynslunnar og lítandi til þeirra skýrslna sem fjallað hafa um þessi mál held ég að skynsamlegast væri að styrkja skattrannsóknir hér á landi með því að veita embætti skattrannsóknarstjóra ákæruvald og heimild til saksóknar. En eins og ég sagði áðan, forseti, þá er nýbúið að samþykkja lög í allt aðra átt, því miður. En ég vænti þess þó að þar sem þessi þingsályktunartillaga fer til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að hún verði tekin þar til umfjöllunar. Það skorti nefnilega á, þegar verið var að undirbúa frumvarpið um að renna skattrannsóknaembættinu undir Skattinn, að stillt væri upp þessum tveimur kostum, hvort betra væri að fara í þá átt sem ég hef mælt fyrir hér eða að leggja stofnunina niður og færa annaðhvort undir Skattinn eða undir héraðssaksóknara. Það skorti að skoða þá leið almennilega sem þó hefur verið mælt með af mörgum fagmönnum sem fara með þessi mál.