breyting á embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins.
Hæstv. forseti. Ég og hv. þingmaður tölum enn einu sinni um þetta mál, þetta er allt af sama meiði. Þessi þingsályktunartillaga er, eins og kom fram í ræðu hv. þingmanns, alveg þvert á nýsamþykkt lög. Samfylkingin er nokkuð einangruð í þessu máli og ég tel rétt að koma því að hér, vegna þess að það gætir svolítils misskilnings, ég tók eftir því í leiðara í Kjarnanum fyrir einhverjum dögum, þar sem þessi misskilningur endurómar allur, um að Sjálfstæðisflokkurinn eða stjórnarflokkarnir séu hér að reyna að draga tennurnar úr skattrannsóknum og skatteftirliti með lögunum sem eru nýsamþykkt. Það er öðru nær. Það frumvarp og þau lög eru byggð á niðurstöðu starfshóps allra helstu sérfræðinga á þessu sviði varðandi skattrannsókn, skatteftirlit, saksókn, ákæruvald og einhverju leyti dómstóla, ef ég man rétt — sérfræðingar í ráðuneytinu, allir komu að þessu. Hugsunin var einfaldlega sú að bæta skatteftirlit og skattrannsóknir. Það er tilgangurinn.
Þessi umræða Samfylkingarinnar er svolítið af sama meiði og var þegar sameina átti, og var sameinað, Fjármálaeftirlitið og Seðlabankann. Þá töldu menn í þeim þingflokki að verið væri að draga úr eftirliti á fjármálamarkaði. Það held ég að sé alrangt líka.
Varðandi tillöguna sjálfa geri ég í sjálfu sér ekki athugasemd við það að menn telji að eitthvað sem heitir skattrannsóknarstjóri fari með ákæruvald. Menn geta alveg haft þá skoðun. En með því að sameina skattrannsóknarstjóra og Skattinn var hugsunin sú að tryggja það með betri hætti, með sameinuðum kröftum þessara tveggja aðila, að öll álagning sé rétt og beita sektum og álagi þegar svo er ekki. Svo eru til önnur mál, sem við getum sagt að séu ekki bara brot á skattalögum heldur brot á almennum hegningarlögum, brot á 262. gr. almennra hegningarlaga. Slíkum skattalagabrotum, sem heyra undir hegningarlagaákvæðið, fylgja oft og iðulega önnur brot sem geta verið tengd skipulagðri glæpastarfsemi, peningaþvætti o.s.frv.
Mín skoðun er sú að það sé ekki sniðugt í þessu tilviki að í öllum skattalagabrotum, sem byrja kannski sem venjuleg skattrannsókn, fari sá sem er að skoða það með ákæruvald. Ég lít svo á að sakamálarannsókn sé talsvert annað fyrirbæri og saksókn enn frekar. Ég sé það ekki fara vel saman að rannsóknaraðilum Skattsins verði fært slíkt vald í hendur. Ég held að það yrði til skaða og raunverulega enn frekar geta eyðilagt mál sem koma fyrir dóm. Nú ætla ég svo sem ekkert að fullyrða um það.
Ég horfi ekki á nýsamþykkt lög sem einhvers konar tvíverknað. Það eru annars vegar mál sem hægt er að ljúka á stjórnsýslustigi með sektum eða álagi og síðan mál sem farið er með til dómstóla til þess að krefjast refsingar. Þegar slík mál koma til héraðssaksóknara til sakamálarannsóknar og saksóknar eftir atvikum, er það þannig, eins og alltaf þegar mál koma til saksóknara, að það byggist á einhvers konar skoðun eða einhvers konar gögnum sem aðrir hafa aflað eða komið fram með. Þannig verður til þetta rannsóknartilvik, gögnin koma og síðan hefst sakamálarannsókn.
Ég held að þetta séu góð lög sem við samþykktum um daginn. Ég tel að þessi þingsályktunartillaga sé mikið afturhvarf, ég vona að þingheimur fari ekki að samþykkja hana þvert ofan í nýsamþykkt lög. Ég tel engar líkur á því í sjálfu sér. Ég vil láta koma reynslu á þetta nýja stofnanafyrirkomulag. Það var þannig að þeir gestir sem komu fyrir nefndina og gerst þekkja til í rannsóknum á skattalagabrotum og sakamálarannsóknum voru yfir höfuð mjög sáttir við það frumvarp og ég held að það sé ekki að ástæðulausu. Ég tel mikilvægt að við leyfum því að koma í ljós hvort skatteftirlit og skattrannsóknir og ákærur og sakfellingar verði ekki í betra ástandi en hefur kannski verið.
Það hefur líka verið gagnrýnt, löngu áður en þessi nýju lög voru samþykkt, að refsingar séu ekki nógu þungar og að menn nái ekki þeim varnaðaráhrifum sem til þarf. Það má vel vera, það er þá ekki nýtt. En það er einfaldlega önnur umræða, kallar á önnur frumvörp eða aðrar þingsályktunartillögur.
Ég vil bara segja í lokin: Fyrirkomulagið sem nýbúið er að samþykkja tel ég augljóslega vera til þess fallið að styrkja skattrannsóknir og eftirlit, að það sé á einni hendi hjá Skattinum, þó að skattrannsóknarstjóri sé auðvitað tiltölulega sjálfstæður í þeim málum. Þar eru rúmlega 90% málanna. Þar eru þau afgreidd og aðeins stærri mál fara til ákæruvalds og til dóms. Þau tengjast, held ég megi segja, nánast undantekningarlaust fleiri brotum en brotum á skattalögum.