151. löggjafarþing — 87. fundur,  27. apr. 2021.

breyting á embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins.

591. mál
[19:00]
Horfa

Flm. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég og hv. þingmaður erum ekki sammála um þetta mál. Við vorum heldur ekki sammála um að sameina bæri Fjármálaeftirlitið og Seðlabankann. Helsta gagnrýni mín á það fyrirkomulag var að Seðlabankinn, þessi mikilvæga stofnun sem við treystum á og byggir sína stöðu mikið á trausti, færi að sinna viðskiptaháttaeftirliti af því að það gæti dregið úr trúverðugleika stofnunarinnar, trúverðugleika seðlabankastjóra. Þá vitnaði ég í reynsluna af því þegar Seðlabankinn fór með gjaldeyriseftirlit og málið á milli Samherja og Seðlabankans kom upp sem nú er í algleymingi í umræðunni. Ég hafði áhyggjur af því að þegar Fjármálaeftirlitið færi inn í bankana og fjármálafyrirtækin, sem eftirlitið þarf að hafa afskipti af, gætu þeir sem væru að verja sinn hag ráðist að Seðlabankanum og það myndi rýra traust bankans. Ég hafði áhyggjur af þessu,

Sem betur fer fengum við í minni hlutanum samþykkta breytingartillögu við það stóra frumvarp, um að sérstakir úttektaraðilar, erlendir og innlendir sérfræðingar, yrðu fengnir til að taka út reynsluna þegar reynsla væri komin á það fyrirkomulag og það er sannarlega til bóta. Kannski hefðum við átt að setja slíkt inn í lögin sem voru samþykkt hér á dögunum um að renna skattrannsóknarstjóra undir Skattinn. Ég er ekki með sérstaka spurningu en af því að hv. þingmaður var að segja okkur hinum (Forseti hringir.) frá því hvað Samfylkingunni fyndist fannst mér rétt að fulltrúi Samfylkingarinnar gerði það bara sjálfur.