breyting á embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins.
Herra forseti. Ég og hv. þingmaður höfum tekist á um fleiri mál. Þegar stjórnarflokkarnir réðust í það að breyta lagaumhverfi Samkeppniseftirlitsins tókumst við á og sem betur fer tókst okkur að koma í veg fyrir stærstu breytingarnar sem áformað var að gera. Samt sem áður stóð eftir samþykkt sem leyfir stóra samruna án tilkynningarskyldu eftir meðferð hér í þinginu og áherslur stjórnarmeirihlutans. Við vorum ekki heldur sammála um meðferðina á Neytendastofu, hún var gerð að örstofnun og boðað í greinargerð að leggja ætti hana niður og þannig er líka farið með skattrannsóknarstjóra.
Ég veit að við höfum talað um þetta hér áður og ég horfist í augu við það að þetta er orðinn hlutur, á laugardaginn taka lögin gildi. Ég á ekki von á því að einhver vitundarvakning verði hér hjá stjórnarliðum um að snúa af þeirri braut. En ég hef samt verulegar og raunverulegar áhyggjur af því að það verði vandræði þegar á að fara eftir lögunum. Það má vera að hv. þingmaður sjái þetta algerlega skýrt fyrir sér en skattrannsóknarstjóri sá ekki fyrir sér hver ætti í raun að fara með rannsókn á stóru málunum. Það er ekki ljóst í lögunum og ég hef áhyggjur af því að þegar verið er að fara af stað með þetta nýja frumvarp muni hægja á öllu ferlinu og það muni verða til skaða fyrir skattrannsóknir hér á landi.