151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

eftirlit með peningaþvætti.

[14:04]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Í morgun birtust fréttir af því að norska fjármálaeftirlitið hefði sektað norska stórbankann DNB um að jafnvirði 6 milljarða íslenskra króna vegna slælegra varna bankans gegn peningaþvætti. Þetta tengist viðskiptum bankans við Samherja. Þetta þykir mjög stórt og alvarlegt mál í Noregi núna og er þungur áfellisdómur yfir þeirra helstu fjármálastofnun. Fyrir tveimur árum áttum við forsætisráðherra orðastað um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í kjölfar sláandi birtingar gagna um starfsemi Samherja í Namibíu og þá áhættu sem skapast gæti fyrir orðspor Íslands þar sem Samherji er stórt og öflugt fyrirtæki í íslensku samhengi, fyrirtæki sem hefur áhrif í alla kima samfélagsins. Þá svaraði forsætisráðherra því að verið væri að fara yfir hvað hægt væri að gera til að standa betur að laga- og regluverki til að koma í veg fyrir að slík mál endurtækju sig.

Spurningin er: Hvað hefur verið gert síðan þá? Hvernig hafa íslensk stjórnvöld tryggt að eftirlitsstofnanir hafi styrk og getu til að takast á við svo yfirgripsmiklar rannsóknir? Hefur embætti héraðssaksóknara, sem hefur Samherjamálið til rannsóknar, nægilegar fjárheimildir og bolmagn? Er Fjármálaeftirlitið hér á landi nægilega vel fjármagnað til að standa í sambærilegum athugunum og það norska? Og hefur verið gengið úr skugga um að íslenskir bankar hafi ekki verið seldir undir sams konar áhættu og nú er að afhjúpast í Noregi?