151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

eftirlit með peningaþvætti.

[14:09]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég vil segja, af því að ég kom því ekki að í máli mínu áðan, að það liggur alveg skýrt fyrir að héraðssaksóknara verða tryggðar þær fjárheimildir sem þarf til að ljúka rannsókn þessa máls. Málið er enn til meðferðar hjá héraðssaksóknara, enn til skoðunar og rannsóknar, og ég hef fulla trú á því að embættið muni sinna verkefni sínu af heilindum og eins vel og hægt er.

Já, ég kallaði eftir dæmum vegna þess að ég held að við höfum dæmi um það að hagsmunaaðilar beiti sér með ótæpilegum og óhóflegum hætti. En ég hef líka þá trú að flokkarnir hér á Alþingi séu vandari að virðingu sinni en svo að þeir láti eingöngu stjórnast af hagsmunaöflum. Þess vegna segi ég að þegar sagt er að landinu sé stjórnað af hagsmunaöflum sé væntanlega verið að segja að stjórnmálaflokkarnir hér séu allir undir stjórn hagsmunaafla. Ég fellst ekki á það. Ég veit hins vegar, alveg eins og hv. þingmaður veit vel, að hagsmunaöfl reyna mjög oft að beita sér óhóflega fyrir ýmsum breytingum og málum. Þess vegna hef ég beitt mér fyrir því og m.a. fengið samþykkt hér á Alþingi lög um varnir gegn hagsmunaárekstrum (Forseti hringir.) af því að mér finnst svo mikilvægt að við tryggjum aukið gagnsæi um þessi mál. (Forseti hringir.) En ég hef þá trú á stjórnmálum og stjórnmálamönnum að þeir láti ekki allir stjórnast af hagsmunum. (Forseti hringir.) Það væri auðvitað verulega illa fyrir okkur komið ef svo væri.