aðgerðir gegn verðbólgu.
Herra forseti. Ég get í fyrsta lagi tekið undir með hv. þingmanni um að hækkun verðbólgu er áhyggjuefni. Þegar skoðað er hvað leiðir hækkun verðlags um þessar mundir er það húsnæði og matvara. Hins vegar er rétt að almennt gera spár ráð fyrir því að verðbólga muni hjaðna þegar líður á árið og auðvitað ætti styrking krónunnar að styðja við þá þróun, eins og hv. þingmaður kom inn á.
Hvað er hægt að gera? Hv. þingmaður nefnir að mikið sé lagt að versluninni lagt að hækka ekki verðlag umfram tilefni. Það er vissulega einn mjög mikilvægur þáttur. Síðan er augljóst að staðan á fasteignamarkaði mun ráða mjög miklu. Þar þurfum við virkilega að fara yfir stöðu mála. Þetta var eitt af því sem unnið var að. Í aðdraganda lífskjarasamninga var settur á laggirnar sérstakur átakshópur um þróun á húsnæðismarkaði. Töluvert hefur verið gert í því að bæta þar stefnumótun og yfirlit yfir stöðuna. Það breytir því ekki að staðan á húsnæðismarkaði er mjög þung núna. Við lesum nánast daglegar fréttir um það hvernig íbúðir seljast yfir ásettu verði á skömmum tíma og í raun og veru er barist um hverja eign. Ég held að það sé mjög stór þáttur sem við þurfum að horfa til. Húsnæðismálin munu verða á dagskrá næsta fundar í þjóðhagsráði þar sem koma saman aðilar vinnumarkaðarins og fulltrúar stjórnvalda, Seðlabanki og sveitarfélög. Það er stór þáttur í því sem við þurfum að horfa til.
Síðan er spurt: Hvað getur Seðlabankinn gert annað? Auðvitað eru ýmsir fleiri undirliggjandi þættir sem þarf að horfa til við ákvörðun stýrivaxta, en ég held að við séum á þeim stað að full ástæða sé til þess að fylgjast mjög grannt með þróun mála af því að þetta er ekki góð þróun.