151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

aðgerðir gegn verðbólgu.

[14:37]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Ég leyfi mér að fullyrða að fasteignakaup með íslenskri krónu séu hrein áhættufjárfesting. Það liggur fyrir í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar frá 14. apríl 2021 þar sem er verið að gera grein fyrir óvissuástandi á fasteignamarkaði. Þar segir, með leyfi forseta:

„Í núverandi vaxtaumhverfi er nauðsynlegt að lánveitendur sem og lántakendur séu meðvitaðir um að töluverðar breytingar gætu orðið á greiðslubyrði óverðtryggðra lána.“

Gildir það að sjálfsögðu einnig um verðtryggð lán. Ég verð að segja það, herra forseti, að mér finnst stefna í verulegt óefni. Sjaldan hefur jafn mikill fjöldi ungs fólks streymt inn á fasteignamarkaðinn og ég hef miklar áhyggjur af því að (Forseti hringir.) vaxtabyrðin, greiðslubyrðin, verði miklu meiri en lántakendur hafa reiknað með. (Forseti hringir.) Ég er hræddur um að það komi að litlu gagni að setja þetta mál í einhvers konar skoðun og nefnd. (Forseti hringir.) Hér hefur einfaldlega ekki tekist nógu vel til. Hvað hyggst ráðherra gera í þessum efnum?