151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

aðgerðir gegn verðbólgu.

[14:39]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Mér þótti hv. þingmaður verða helst til dramatískur í síðari spurningu. Staðreyndin er sú að tekist hefur gríðarlega vel upp við stjórn efnahagsmála á þessu kjörtímabili, hvort sem litið er til peningastefnu, stjórnar ríkisfjármála eða á vinnumarkaði. Þar á Seðlabankinn mikið hrós skilið fyrir hvernig hann hefur haldið á málum. Það breytir því ekki að þó að heilt yfir hafi gengið vel er full ástæða til að hafa áhyggjur þegar við sjáum verðbólguna fara upp. Það sem ég held að sé mjög mikilvægt að gera í því — fyrir utan það sem ég nefndi áðan um að innlendir aðilar hækki ekki verðlag umfram tilefni sem er mjög mikilvægt — er að skoða sérstaklega húsnæðismarkaðinn þar sem hefur verið gripið til margháttaðra aðgerða, hlutdeildarlána til að styðja við kaupendur fyrstu eigna, aukinn stuðning við félagslegt húsnæðiskerfi, sem er einn af þeim þáttum sem eru mikilvægir til að tryggja stöðugleika á húsnæðismarkaði, og að vera með skýrari stefnumótun á sviði húsnæðismála. Það er eitt af aðalmálunum sem við höfum verið að ræða á vettvangi þjóðhagsráðs og ég held að það sé stóri þátturinn í stefnumótuninni fram undan í þessum málum. Hins vegar er það ekki svo að ég telji ástæðu til að hafa uppi stór orð um hvert stefni. Ég tel að Seðlabankinn hafi hingað til staðið sig vel og muni gera það áfram.

Ég þakka fyrir þessa aukamínútu, herra forseti.