151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

losun gróðurhúsalofttegunda.

[14:43]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fyrirspurnina. Hér er um að ræða endanlega niðurstöðu loftslagsbókhalds fyrir árið 2019 sem hv. þingmaður vitnar til. Þar kemur fram, sem er mjög ánægjulegt, og ég held að við getum öll verið sammála um það, líkt og hún vitnaði í orð mín, að kyrrstaðan hefur verið rofin en slíkur samdráttur hefur ekki átt sér stað síðan árið 2012. Ég er í hópi þeirra sem vilja sjá meiri samdrátt og hraðari samdrátt, og um það erum við hv. þingmaður sammála, en þetta er samt sem áður að mínu mati, og að mati þeirra sem ég hef rætt þetta við í kerfinu, mjög sterk vísbending um að þetta muni halda áfram. Það er einmitt vegna þeirrar greiningar sem hv. þingmaður nefndi, þetta væri ekki bara vegna þess að ferðamönnum hefði fækkað heldur væru líka aðrir hlutir innan lands að valda samdrætti í losun frá vegasamgöngum. Hv. þingmaður nefndi það réttilega að sennilega er tveir þriðju vegna fækkunar ferðamanna og einn þriðji vegna annarra þátta og við getum þá væntanlega leitt líkur að því að það sé vegna aðgerða stjórnvalda. En það er fleira en vegasamgöngurnar sem er að dragast saman. Það er líka samdráttur vegna úrgangsmála og hann má rekja til aðgerða á vegum stjórnvalda. Það er kannski ekki endilega ráðuneytið sjálft, heldur þau sem fara með úrgangsmálin, en það er hluti af þessum heildarpakka.

Ég vil síðan meina að við munum sjá samdrátt á næsta ári þegar kemur að svokölluðum F-gösum eða flúoruðum gastegundum. Það var toppur þar, sem sagt aukning nú í ár, vegna þess að það var mikill innflutningur sjö árum áður, árið 2012. Það mun fara niður á næsta ári og mjög (Forseti hringir.) hratt fram til ársins 2030 og hraðar en gert var ráð fyrir, einmitt út af aðgerðum stjórnvalda.