losun gróðurhúsalofttegunda.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Við skulum hafa það á hreinu, einmitt eins og hæstv. ráðherra nefndi hér, að frá árinu 2014 hefur losun Íslands verið umfram samdrátt. Og meðaltalslosunin var líka umfram samdrátt á árunum 2006–2010. Því miður er það ekki nógu mikið afrek að draga úr þeirri miklu losun sem verið hefur meiri en samdrátturinn öll þessi ár. Það er líka svo að samkvæmt aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum átti samdráttur í útblæstri vegna vegasamgangna að vera á milli 4% og heilla 19% frá skipum og 8% frá höfnum 2018–2019. Þannig að tölurnar sem liggja nú á borðinu yrðu 2% og 4,4%, svo ríkisstjórnin er ansi langt frá sinni eigin aðgerðaáætlun og sínum eigin markmiðum þegar kemur að því að draga úr útblæstri.
Því spyr ég, herra forseti: Hvernig samræmist þessi litli samdráttur í losun, sem fram kemur í bráðabirgðatölum og er að langmestu leyti til kominn vegna utanaðkomandi þátta en ekki vegna beinna aðgerða ríkisstjórnarinnar til að sporna við losun gróðurhúsalofttegunda, okkar alþjóðlegu skuldbindingum? Hvernig samræmast þessar tölur þeim?