151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

706. mál
[15:01]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil koma stuttlega inn á þetta mál sem er í sjálfu sér alveg ágætt. Það lýtur að því að Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, þetta Kadeco-félag, er að fá nýtt hlutverk við framtíðarstefnumótun og greiningu á tækifærum á gamla varnarsvæðinu. Jafnframt er þess getið hér að upprunalegu hlutverki þessa félags sé lokið, þ.e. að selja eignir varnarliðsins, sú fasteignaumsýsla sem hér er rætt um. Nú voru töluverð verðmæti í þeim fasteignum sem varnarliðið skildi eftir sig við brottförina 2006 og mig langaði að spyrja hv. þingmann hvort fyrir liggi einhvers konar yfirlit yfir allar þær eignir. Hvað fékkst fyrir þessar eignir og hverjir voru kaupendurnir? Það er sjálfsagt og eðlilegt að fullkomið gagnsæi ríki í svona eignaumsýslu, einnig til að kveða niður raddir sem hafa heyrst, m.a. á Suðurnesjum, um að sumar af þeim eignum, og óeðlilega margar, hafi fallið í skaut tiltekinna aðila. Þekkir hv. þingmaður hvort fyrir liggur yfirlit um þetta, hverjir keyptu, á hvaða verði o.s.frv.? Ef ekki, telur hv. þingmaður þá ekki eðlilegt að slíkar upplýsingar kæmu fram svo að fullkomið gagnsæi ríki um sölu þessara eigna sem varnarliðið skildi eftir sig við brottflutninginn?