151. löggjafarþing — 88. fundur,  3. maí 2021.

ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

706. mál
[15:03]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég er ekki með þetta allt í kollinum sem snýr annars vegar að sölunni á markaði og hins vegar að verðmæti þeirra eigna sem voru seldar eftir að herinn fór 2006 en tel ósköp eðlilegt að hv. þingmaður geti kallað eftir því með einhverjum hætti. Ég get ekki þulið það upp úr mér í þessum ræðustól einn, tveir og þrír, en spurningin er eðlileg og fyrirspurnin í þessari umræðu.