ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Herra forseti. Ég er nú svo sem ekki að ætlast til þess að hv. þingmaður viti þetta nákvæmlega, ég tek algerlega undir það. En það er gott að heyra frá hv. þingmanni að hann er sammála mér í því að þetta eigi að liggja fyrir með gagnsæjum hætti. Ég held að það sé mjög mikilvægt vegna þess, eins og ég sagði hér áðan, að þarna voru töluverðar eignir á ferðinni, töluverð verðmæti sem voru í eigu íslenska ríkisins eftir brottflutning varnarliðsins og voru síðan seld.
Það er annað sem mig langar að koma aðeins inn á í þessu máli og spyrja um skoðun hv. þingmanns á. Nú á sem sagt að fara að ráðstafa lóðum og byggingarrétti að lokinni skipulagsvinnu og það á allt að gerast á gagnsæjan og opinn hátt. Ég fagna því að sjálfsögðu og ég legg líka áherslu á að þetta nýtist svæðinu sem best vegna þess að þarna ríkir náttúrlega mikið atvinnuleysi sem við þurfum að vinna bug á.
En það sem ég vildi koma inn á við hv. þingmann eru umhverfismálin, mengunarmálin. Nú er það þekkt að þarna fannst töluverð mengun í jarðvegi eftir brottflutning varnarliðsins og ég hef þær upplýsingar frá Umhverfisstofnun að ekki hafi verið framkvæmd nein heildstæð rannsókn á umhverfismálum á svæðinu og mengunarmálunum, a.m.k. ekki af hálfu Umhverfisstofnunar. Gerð var einhvers konar könnun af Almennu verkfræðistofunni í samstarfi við Kadeco, en upplýsingarnar sem ég hef frá Umhverfisstofnun eru þær að ekki hafi farið fram nein heildstæð rannsókn. Er ekki eðlilegt að slík rannsókn verði gerð, ekki síst í ljósi þess að nú á að fara að úthluta lóðum, hefja framkvæmdir, jarðvegsframkvæmdir og annað slíkt, (Forseti hringir.) áður en menn fara í þá vinnu, þannig að það liggi alveg fyrir að ekki sé frekari mengun á svæðinu en sú sem vitað er um á vissum svæðum?