ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Herra forseti. Aftur er sá sem hér stendur ekki innsti koppur í búri í þessari umræðu eða hefur komið nálægt henni að því leyti. En eins og kemur fram hjá hv. þingmanni þá er eðlilegt að skoða þessi mál. Ég þekki til framkvæmda við flughlaðið á Akureyrarflugvelli, ég get tekið það sem dæmi. Framkvæmdum þar hefur einmitt seinkað vegna þess að þar var olíumettaður jarðvegur, sem hafði verið nálægt eldsneytisafgreiðslu, sem þarf að fjarlæga áður en framkvæmdir hefjast. Það er ekki óeðlilegt að þessir hlutir séu skoðaðir. Ef óæskileg mengun er til staðar hlýtur að vera eðlilegt að unnið sé með þeim hætti að það standist kröfur. Sjálfsagt er það nú þannig að með árunum hafa allar kröfur þyngst varðandi þessa hluti og öryggiskröfur, eins og olíugildrur og annað á flugvallarsvæðum og flugvallarhlöðum og annað slíkt. Þetta var kannski ekki á sama stað fyrir einhverjum áratugum. En það er eðlilegt að þetta sé skoðað vel og að upplýsinga sé aflað um það hvort eitthvað þurfi að lagfæra og hvort fara þurfi í jarðvegsskipti. Þetta eru hlutir sem við viljum hafa á hreinu, að þetta ógni a.m.k. ekki með neinum hætti vatnsbólum eða öðru sem gæti komið upp í slíkri umræðu.