ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Herra forseti. Ég ætla svo sem ekki að lengja þessa umræðu sérstaklega en það eru tvö atriði sem ég vildi aðeins árétta. Nú er verið að breyta hlutverki þessa félags, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, sem var stofnað við brottför varnarliðsins 1. október 2006 og gengur undir nafninu Kadeco. Þessum verkefnum er lokið, eins og hér er getið, og nú tekur það að sér nýtt hlutverk. Hér er verið að einfalda regluverk hvað það varðar og skýra hlutverk þess til frambúðar. Ég fagna því að sjálfsögðu að það sé verið að leita eftir formlegu samstarfi Isavia, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar um skipulag, þróun og hagnýtingu og markaðssetningu lands sem er í eigu íslenska ríkisins við Keflavíkurflugvöll og nærsvæði hans, eins og segir í greinargerðinni. Hér er náttúrlega um mjög verðmætt land að ræða og kemur til með að verða verðmætara í framtíðinni, einfaldlega vegna nálægðar við flugvöllinn og alla þá þjónustu sem þarf að veita á því svæði. Eftirspurn eftir þessu landi mun að sjálfsögðu aukast á komandi árum. Þess vegna er afar mikilvægt í mínum huga að það ríki gott samstarf við bæjarfélögin á svæðinu sem eiga hagsmuna að gæta og, eins og ég sagði hér áðan í andsvari, það verði horft svolítið til atvinnuuppbyggingar þegar kemur að því að úthluta þessum lóðum og skipuleggja svæðið. Þarna verði þjónustuaðilar sem geta þá vonandi í framhaldi veitt atvinnu á því svæði sem svo sannarlega veitir ekki af þar sem atvinnuleysi er mjög mikið á Suðurnesjum og alvarlegt ástand þar í atvinnumálum, svo við orðum það bara alveg eins og það er.
Þá vil ég koma að því sem ég nefndi áðan í andsvari varðandi stefnumótun og greiningu á tækifærum. Þetta snýr náttúrlega að samkeppnishæfni flugvallarins og auk þess þarf að gæta að því að samkeppni ríki milli aðila á flugvellinum. Isavia er náttúrlega mjög stórt og mikið fyrirtæki þarna sem hefur mikla sérstöðu á svæðinu en það eru líka önnur minni fyrirtæki sem hafa áhuga á því og hafa verið að starfa við flugafgreiðslu og annað slíkt sem þurfa náttúrlega sitt rými. Það er því mikilvægt að horft verði til samkeppnissjónarmiða þegar kemur að þessu.
Í andsvari áðan kom ég aðeins inn á umhverfisþáttinn þegar verður farið að úthluta lóðum. Það er þekkt að það er mengun á þessu svæði, sérstaklega á svokölluðu Nikkelsvæði. Þar var jarðvegur fjarlægður og fluttur á svokallað Dye-5 svæði sem er nálægt Stafnesi og þar er mengaður jarðvegur. Það er heldur ekki vitað nákvæmlega hvort það sé búið að komast fyrir allan mengun á Nikkelsvæðinu sem er nú orðið byggingarsvæði á vegum Reykjanesbæjar. Ég kannaði það sérstaklega hjá Umhverfisstofnun hvort gerð hafi verið sérstök og heildstæð rannsókn á umhverfismálum eftir brotthvarf varnarliðsins og þá sérstaklega með tilliti til mengunarmálanna. Ég fékk þau svör frá Umhverfisstofnun að stofnuninni væri ekki kunnugt um að rannsóknir hefðu verið gerðar á svæðinu, þ.e. heildstæðar rannsóknir. Þær voru ekki á forræði Umhverfisstofnunar. Mér finnst þetta svolítið ámælisvert.
Árið 2007 átti Umhverfisstofnun í samskiptum við Almennu verkfræðistofuna sem var að vinna að ákveðnum umhverfisrannsóknum fyrir hönd þróunarfélagsins á þeim tíma. Þar leitaði verkfræðistofan leiðbeininga frá stofnuninni vegna rannsókna sem áttu að fara fram á þeim tíma og þar lagði stofnunin til frekari grunnvatnsrannsóknir á svæðinu og þá sérstaklega vegna urðunar úrgangs á Miðnesheiði. Og nú hefur það einnig komið fram í fréttum að það var blýmengun í vatni á Ásbrú sem má rekja til vatnslagna þar og síðan hefur fundist mengun á gömlum ruslahaugum þar sem nú er byggingarsvæði í mótun. Það er því þekkt að varnarliðið skildi eftir sig mengun á þessu svæði og jafnvel alvarlega mengun á ákveðnum staðbundnum svæðum. Það er mjög sérstakt, verð ég að segja, herra forseti, að ekki skuli hafa farið fram heildstæð úttekt á þessu af hálfu Umhverfisstofnunar. Auðvitað átti stofnunin að taka þetta svæði út þegar varnarliðið fór á sínum tíma. Það hafa verið gerðar rannsóknir og Almenna verkfræðistofan, eins ég segi, gerði rannsóknir fyrir hönd þróunarfélagsins Kadeco, en ég veit ekki til þess að þær rannsóknir hafi verið sérstaklega vottaðar af hálfu Umhverfisstofnunar. Spurningin er sem sagt þessi hvað varðar þær rannsóknir sem hafa verið gerðar þarna: Voru þær fullnægjandi? Það er vitneskja um mengun á þessu svæði og það getur haft áhrif á skipulag svæðisins þegar það verður tekið til annarra nota, nákvæmlega það sem þróunarfélaginu er ætlað að standa straum af og fara í þá vinnu. Þess vegna held ég að það sé nauðsynlegt að svara því hvort búið sé að gera fullnægjandi athuganir á mengunarmálum þarna, bora holur o.s.frv. til að kanna jarðvegssýni með fullnægjandi hætti. Ég legg áherslu á að þetta verði skoðað í þeirri vinnu sem þróunarfélaginu er ætlað að standa straum af.
Svo vil ég koma aðeins inn á það sem ég nefndi áðan varðandi fyrra hlutverk þróunarfélagsins sem var að selja þessar fasteignir, fasteignaumsýslan sem félagið tókst á hendur fyrir hönd ríkissjóðs eftir að varnarliðið fór. Þarna voru töluverð verðmæti í fasteignum á svæðinu, eins og við þekkjum, sem varnarliðið skildi eftir og var samkomulag um að ríkissjóður tæki yfir. Þá spyr maður sig að því hvort ekki sé eðlilegt, nú þegar þessum þætti er lokið, að gefin verði út einhvers konar skýrsla um það hver verðmætin voru, hvað fékkst nákvæmlega fyrir þessar eignir, hverjir keyptu þær og á hvaða verði. Það á að ríkja fullkomið gagnsæi í þessum fasteignaviðskiptum og auk þess bara til að kveða niður einhverjar sögusagnir um að óeðlilega mikið af þessum eignum hafi komið í hlut sömu aðila. Það kann að vera að þeir hafi bara greitt hæsta verðið og þá er eðlilegt að það komi fram. Ég hefði talið mjög eðlilegt að núna þegar þróunarfélagið lýkur hlutverki sínu verði gerð skýrsla um það þannig að það ríki fullkomið gagnsæi.
Að þessu sögðu, herra forseti, þá er þetta að sjálfsögðu gott frumvarp að því leytinu til að það er verið að skerpa á hlutverki þróunarfélagsins. Ég vona svo sannarlega að sú vinna sem fram undan er af hálfu þess verði öflug og góð og þarna verði hægt að fara í skipulagsvinnu sem stuðli að því að þarna verði sem samkeppnishæfast umhverfi fyrir þá flugvallarstarfsemi sem er þarna og það verði haft gott samráð við helstu hagsmunaaðila sem eru sveitarfélögin á Suðurnesjum og í nágrenni við Keflavíkurflugvöll og þá einkum og sér í lagi Reykjanesbær og Suðurnesjabær. Allir þessir aðilar horfi til þess að þetta svæði megi vaxa og dafna, íbúum á svæðinu til heilla og að sjálfsögðu þeim sem koma til með að nýta þá þjónustu sem er mjög mikilvæg í kringum flugvallarstarfsemina.