kyrrsetning, lögbann o.fl.
Forseti. Fyrst vil ég taka það fram að í 73. gr. stjórnarskrárinnar segir að ritskoðun eða aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi megi aldrei leiða í lög. Ég vil nefna þetta því að það er alltaf alvarlegt þegar stórfyrirtæki vilja setja tálmanir á tjáningarfrelsi og umfjöllun fjölmiðla, líkt og ég hef áður komið inn á í þessum ræðustól. Eins og önnur réttindi má takmarka tjáningarfrelsi í þágu allsherjarreglu og með lögum. Tilgangur þessa frumvarps er að tryggja að málsmeðferð fyrir dómi vegna lögbanns sem sýslumaður hefur samþykkt verði flýtt, þó að ég hefði viljað að öll slík mál þar sem setja á hömlur á umfjöllun fjölmiðla færu alltaf beint til dómstóla.
Píratar lögðu fram frumvarp á 148. löggjafarþingi um málsmeðferð mála er varða lögbann á umfjöllun fjölmiðla en það þurfti nánari skoðun, sem var svo gert og hefur ráðuneytið lagt fram þetta frumvarp sem er til umræðu hér í dag. Frumvarp Pírata gekk þó lengra og tiltók, með leyfi forseta, „að ekki verði unnt að leggja lögbann á miðlun fjölmiðla án undangengins úrskurðar héraðsdóms“. Tilgangur frumvarpsins var að tryggja að ekki yrði möguleiki fyrir gerðarbeiðanda lögbanns að stöðva miðlun fjölmiðils á efni án aðkomu dómstóla. Lög nr. 31/1990 veita sýslumanni heimild til að samþykkja kröfu um lögbann á umfjöllun fjölmiðla ef beiðni um slíkt er talin uppfylla kröfu um formskilyrði laganna. Frumvarpið sem liggur fyrir nú takmarkar ekki þá heimild sýslumanns heldur tiltekur að ef lögbannið er kært þá eigi meðferð fyrir héraðsdómi að fylgja lögum um flýtimeðferð mála.
Ástæðan fyrir því að Píratar lögðu frumvarpið fram á sínum tíma var til að bregðast við því þegar Glitnir HoldCo fór fram á lögbann á alla umfjöllun Stundarinnar um þrotabú Glitnis. Þetta gerðist tveimur vikum fyrir alþingiskosningar og ljóst að umfjöllunin var mikilvæg fyrir almenning.
Tjáningarfrelsið er varið í stjórnarskrá og alþjóðlegum sáttmálum. Það má vissulega takmarka til að vernda friðhelgi einkalífs en sú skerðing verður að teljast nauðsynleg í lýðræðislegu þjóðfélagi. Hvað varðar heimild sýslumanns kemur fram í lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl. að það er nóg að formskilyrði beiðninnar séu uppfyllt en ekki er gert ráð fyrir að sýslumaður þurfi að meta sérstaklega hvort beiting lögbanns á umfjöllun fjölmiðils teljist nauðsynleg í lýðræðislegu þjóðfélagi.
Í því frumvarpi sem liggur fyrir nú er heimild sýslumanns ekki takmörkuðu að neinu leyti sem þýðir að ef svipað mál og Glitnis HoldCo kemur upp í framtíðinni þá getur sýslumaður enn sett lögbann á fréttaumfjöllun ef formskilyrði beiðninnar eru uppfyllt. Eina breytingin er að ef, með leyfi forseta, „gerðarþoli hefur andmælt framgangi lögbannsgerðar á þeim grunni að hún stríði gegn réttindum sem varin eru af 73. gr. stjórnarskrárinnar skal farið um málið eftir ákvæðum XIX. kafla laga um meðferð einkamála, eftir því sem við á, og er þá ekki þörf á samþykki forstöðumanns dómstóls fyrir því að málið sæti flýtimeðferð“.
Þannig að jú, þetta frumvarp er vissulega skref í rétta átt, en það breytir því ekki að sýslumaður hefur enn heimild til að samþykkja lögbann án þess að taka tillit til efnis beiðninnar en von mín og Pírata er auðvitað sú að ákvæði um flýtimeðferð muni skila því að almenningur þurfi ekki að þola það að stórfyrirtæki geti tafið í lengri tíma birtingu á umfjöllun sem á mikið erindi við almenning og þá sérstaklega í samhengi við tímasetningu umfjöllunarinnar og hvenær hún á að birtast.