þingsköp Alþingis.
Virðulegi forseti. Þetta er mál sem var aðeins rætt hér við 1. umr. og við höfum svo sem talað oft og lengi um, þ.e. frumvarp til laga um þingsköp Alþingis með síðari breytingum, og undirtitillinn er kynjahlutföll. Við í nefndinni fengum alls konar fólk á okkar fund en það var forsætisnefnd sem lagði málið fram í haust og studdu einnig áheyrnarfulltrúar í nefndinni flutning þess. Tilefnið er heildarskoðun laganna frá 2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og jafnréttislaga sem hófst árið 2019, en afrakstur þeirrar vinnu var kynntur í samráðsgátt stjórnvalda í júlí 2020. Í tengslum við þá endurskoðun óskaði forsætisráðherra eftir því að vilji þingsins yrði kannaður, hvort við gætum náð saman um að breyta þingsköpum Alþingis til þess að jafnréttislög næðu þannig yfir kynjahlutföll í nefndir, ráð og stjórnir á vegum þingsins, þ.e. að þau yrðu sem jöfnust.
Þetta er í raun afar stutt frumvarp. Ég ætla aðeins að fara hér yfir vísiregluna sem er 1. og 2. gr. frumvarpsins í nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar. Það var auðvitað búið að gagnrýna Alþingi mjög mikið fyrir að standa ekki nægilega vel að jafnréttissjónarmiðum þegar verið var að kjósa í nefndir þingsins og í frumvarpinu er einmitt reifað að það reyndi til að mynda á þegar ein kona og átta karlar voru kosnir í fjárlaganefnd eftir alþingiskosningarnar 2017, og sú kona er sú sem hér stendur. Það voru dálítil viðbrigði að vera eina konan í þeirri nefnd, svo sem hvaða nefnd sem er en ég hafði setið í þeirri nefnd áður og umræðan breyttist töluvert, það fann ég greinilega.
Í 1. og 2. gr. frumvarpsins er lagt til að við kosningu í forsætisnefnd og fastanefndir þingsins skuli gætt að hlutfalli kynjanna þannig að það sé eins jafnt og niðurstöður alþingiskosninga og kynjahlutföll þingflokkanna bjóða. Það kom fram þegar við fjölluðum um málið að í ljósi sérstöðu forsætisnefndar ætti að mæla með fortakslausum hætti fyrir jöfnu kynjahlutfalli og tryggja að hlutfall kvenna yrði aldrei minna en 40%. En við í meiri hlutanum tökum fram að framkvæmd ákvæðanna takmarkast auðvitað við kynjahlutfall þingflokkanna sem eru á Alþingi hverju sinni og við getum í raun aldrei skyldað þingflokka til að skipa ákveðið kyn í tilteknar nefndir, hvort heldur sem það er forsætisnefnd eða aðrar fastanefndir. Við sjáum það bara hér á þingi núna þar sem flokkar eru með fleiri konur en karla í sínum röðum eða fleiri karla en konur, og eðli máls samkvæmt endurspeglast nefndarskipan út frá því. En það eru samt þau sjónarmið að baki kosningu í forsætisnefnd og kosningu í fastanefndir að samsetning þingsins endurspegli þennan styrkleika þingflokksins og við höfum reynt að framfylgja því sem kallað hefur verið vísiregla um að hafa jafnt kynjahlutfall eins og kostur hefur verið. Það var líka rætt að einnig þurfi að taka tillit til fleiri sjónarmiða en kynferðis, t.d. áhugasviðs okkar þingmanna eða hvar styrkleikar okkar liggja.
Fram komu sjónarmið um að 2. gr. frumvarpsins tryggi að gætt verði að kynjahlutföllum við fyrstu nefndarkosningar að loknum alþingiskosningum en ekki ef um er að ræða breytingu á nefndarskipan á kjörtímabilinu. Mér finnst þetta samt vera eitthvað sem við eigum alltaf að reyna að hugsa um ef við getum haft þetta sem jafnast, jafnvel þó að við séum að breyta til á miðju kjörtímabili. Að auki þurfum við að tryggja jöfn kynjahlutföll við skiptingu formannsembætta milli þingflokka sem og við kosningu formanna alþjóðanefnda. Enn fremur þarf að tryggja að formenn nefnda og varaformenn séu ekki af sama kyni.
Meiri hlutinn bendir á að vísireglan er ekki takmörkuð við val í nefndir á fyrsta þingi eftir alþingiskosningar heldur þurfi að gæta að kynjahlutföllum í nefndir eftir því sem líður á kjörtímabilið og breytingar verða á skipan nefnda. Þá þurfi að hafa í huga samspil ákvæða frumvarpsins og hlutfallskosninga með þeirri aðferð sem kennd er við d'Hondt, samanber 82. gr. þingskapa, sem og styrk hvers þingflokks.
Okkur var líka bent á að í 1. og. 2. gr. frumvarpsins væri á engan hátt fjallað um fólk með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá, samanber 3. gr. frumvarpsins. Meiri hlutinn tekur fram að ljóst er að 1. og 2. gr. frumvarpsins miða að því að jafna þátttökumöguleika og áhrif þessara tveggja hópa, karlkyns og kvenkyns, í samfélaginu. Þrátt fyrir að ákvæði 1. og 2. gr. frumvarpsins geymi ekki fortakslausa reglu eins og er í 3. gr. frumvarpsins telur meiri hlutinn hins vegar rétt að 1. og 2. gr. frumvarpsins endurspegli þann veruleika að kynin eru sannarlega fleiri en tvö. Meiri hlutinn leggur þess vegna til breytingar þess efnis að gætt skuli að stöðu fólks með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá.
Meiri hlutinn telur réttast að gerðar verði sambærilegar breytingar á 2. mgr. 1. gr. þingskapa og kveðið er á um í 1. og 2. gr. frumvarpsins, þannig að þess sé gætt að hlutfall kvenna og karla í kjörbréfanefnd verði eins jafnt og niðurstöður alþingiskosninga og kynjahlutföll innan þingflokka bjóða. Alltaf komum við að því aftur. Þá skuli gæta að stöðu fólks með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá. Í þessu samhengi áréttar meiri hlutinn að um sérnefndir gilda sömu reglur og um fastanefndir eftir því sem við á, samanber 32. gr. þingskapa. Þannig skuli gætt að hlutfalli kynja við kosningu í sérnefndir sem og að stöðu fólks með hlutlausa skráningu kyns.
Með 3. gr. frumvarpsins er lögð til sú fortakslausa regla að við kosningu nefnda, ráða og stjórna á vegum Alþingis og í önnur opinber ráð og stjórnir skuli þess gætt að hlutfall kvenna og karla sé sem jafnast og ekki minna en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða. Það kemur ekki í veg fyrir kosningu fólks með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá. Hlutfall kvenna skal þó aldrei vera minna en 40%. Hér erum við m.a. að tala um stjórn Seðlabankans, Ríkisútvarpsins, Þingvallanefnd og fleiri nefndir sem við erum með á vegum Alþingis.
Við meðferð málsins var bent á mikilvægi þess að komið verði upp gagnsæju ferli til að tryggja jöfn kynjahlutföll. Meiri hlutinn tekur fram að í greinargerð með frumvarpinu er gert ráð fyrir að leitað verði leiða á vettvangi þingflokksformanna til að hlutfall kvenna og karla á listum sem kjósa skal um samkvæmt 82. gr. þingskapa verði sem jafnast. Þar kemur fram að verkefnið er gerlegt þannig að hægt verði að samræma tilnefningar þingflokka í utanþingsnefndir fyrir kosningu þeirra. Meiri hlutinn telur því ekkert til fyrirstöðu að þingflokksformenn taki til skoðunar hvort tilefni er til að koma upp einhverju ferli með það að markmiði að tryggja jöfn kynjahlutföll. Í þessu samhengi bendir meiri hlutinn einnig á að á vef Alþingis er að finna hverjir eru kosnir af Alþingi í stjórnir, nefndir og ráð. Og við tókumst á við þetta í upphafi þessa kjörtímabils, minnir mig, þegar skipað var í Seðlabanka Íslands og tókst ágætlega til hjá þingflokksformönnum þá.
Í 3. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 82. gr. þingskapa. Í 1. og 2. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 3. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 14. gr. þingskapa. Þá leggur meiri hlutinn til sambærilegar breytingar á 1. gr. laganna og er að finna í 1. og 2. gr. frumvarpsins. Í þessum ákvæðum er vísað til 82. gr. laganna. Ákvæði 1., 3. og 14. gr. þingskapa teljast sérreglur gagnvart almennu reglunni um hlutfallskosningu í 82. gr. laganna. Meiri hlutinn telur aftur á móti réttast að áréttað verði í 3. gr. frumvarpsins að hin fortakslausa regla um jafnt kynjahlutfall eigi ekki við um kosningu í forsætisnefnd, fastanefndir, alþjóðanefndir og kjörbréfanefnd og leggur til breytingar þess efnis.
Í þingsköpum norrænna þjóðþinga eru ekki ákvæði um kynjahlutföll í fastanefndum eða öðrum nefndum. Verði frumvarpið að lögum verður Alþingi fyrsta þjóðþingið á Norðurlöndum til að mæla fyrir um sjónarmið um kynjahlutföll í þingsköpum.
Að öllu framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að þetta frumvarp verði samþykkt með þeim breytingum sem því fylgja.
Undir það skrifa Páll Magnússon formaður, með fyrirvara, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Olga Margrét Cilia, með fyrirvara, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.
Ég vil bara segja það, virðulegi forseti, að það er ekkert eyland í þessu. Þetta eru tilmæli. Það er samt verið að beita ákveðinni vísireglu. Það er ekki hægt að skikka neinn til að skipa í nefndir eftir þessu viðmiði, þ.e. hvort kyn. En þetta er skref í rétta átt. Þetta er leiðarstef í ákvarðanatöku sem er þá fest betur í sessi og við höfum í huga eins og við getum hér innan þingsins og minnir okkur á að þrátt fyrir að það sé lýðræðislega valið á lista flokka fyrir kosningar er líka áhugavert að sjá að áratugum saman ná kynjahlutföllin ekki að rétta sig af þrátt fyrir aukna þátttöku kvenna í stjórnmálum. Hlutfall kvenna fór niður í 38% hér á þingi eftir kosningarnar 2017, úr að mig minnir 48% 2016. Það er auðvitað áhyggjuefni og nú eru að koma kosningar og uppstillingar alls konar og ég held að það sé mjög mikilvægt að þetta sé haft í huga, að þeir sem velja á listana hugi að því að hann endurspegli ekki bara kyn heldur líka auðvitað allt annað það sem þeir sem bjóða sig fram hafa til að bera.
Virðulegi forseti. Ég ætla að láta þetta duga. Gerðar eru breytingartillögur af hálfu meiri hluta og breytingartillögur af hálfu minni hluta sem væntanlega verður gerð grein fyrir hér á eftir.